Endurskoðunarákvæði Icesave hagstæð Íslendingum 23. júní 2009 15:43
Jakob Möller hrl. segir að ákvæði um endurskoðun samningsins, verði endurgreiðsla íslenska ríkinu um megn, séu mjög hagfelld lántakanum:. Um þetta segir Jakob: ,,Fullyrða má, að ákvæði þessi séu lántaka mjög í hag, og eru ella a.m.k. nánast óþekkt í lánasamningum, og ákvæðin að auki hagfelldari en gengur og gerist í viðskiptasamningum." Að ósk utanríkisráðuneytisins hefur Jakob R. Möller hrl. tekið saman álitsgerð um Icesave samningana við Hollendinga og Breta. Í henni fjallar Jakob um mörg helstu álitamálin sem uppi hafa verið í almennri umræðu frá því skrifað var undir samkomulagið þann 5. júní. Helstu niðurstöður Jakobs eru þessar en þær má finna í heild á vefsíðunni www.island.is : Í samningunum eru mikilvæg ákvæði sem heimila greiðslur fyrir gjalddaga að hluta eða öllu leyti og þar með niðurgreiðslu á höfuðstól, með þriggja daga fyrirvara. Þetta er hagkvæmari lántaka en almennt gerist í lánasamningum. Að mati lögmannsins eru eignir ríkisins erlendis ekki aðfararhæfar, nema því aðeins að um sé að ræða sambærilega eign og einkaaðili á, t.d. verslun sem rekin er í nafni íslenska ríkisins. Af þessu leiðir að sendiráð njóta t.d. fullkominnar verndar. Sama gildir um allar eignir Seðlabanka Íslands bæði innanlands og utan. Innlendar eignir ríkisins eru ekki aðfararhæfar, nema þá þær eignir sem eru ,,öldungis sambærilegar við samskonar eignir einkaaðila." Vaxtakjör íslenska ríkisins eru ,,ekki tiltakanlega há miðað við lánasamning til 15 ára." Ákvæði í samningnum um jafna meðferð kröfuhafa eru eðlileg og sambærileg við algeng ákvæði í alþjóðlegum lánasamningum. Vanefndarákvæði eða gjaldfellingarákvæði, ef til þess kemur að íslenska ríkið eða stjórnarstofnun undir ríkis eða ráðherravaldi, standi ekki skil á greiðslum, eru sambærileg við ákvæði í ýmsum öðrum lánasamningum íslenska ríkisins undanfarinn ár og áratugi. Um samninginn gilda bresk lög og er það venja í alþjóðlegum samningum segir Jakob í áliti sínu, að lánasamningar séu háðir lögum lands lánveitenda og undir lögsögu dómstóla í heimaríki hans. Rétt er að benda á að íslenska ríkið hefur margsinnis áður gert samninga sem háðir hafa verið erlendum lögum. Þetta eitt, segir Jakob, hefur þó ekki verið talið að feli í sér skerðingu á fullveldi Íslands. Jakob dregur hins vegar ekki dul á að betra hefði verið að óháður gerðadómur skæri úr um ágreining, ef hann rís.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira