Icelandair nær efstu sætum í neytendaskýrslu 23. júní 2009 11:42
Óhætt er að segja að Icelandair sé sigurvegari nýrrar Neytendaskýrslu AEA, Sambands evrópskra flugfélaga. Í skýrslunni er kynnt frammistaða ervrópskra flugfélaga á síðasta vetri í fjórum mikilvægum þjónustuflokkum fyrir neytendur, þ.e. í fullnustu fluga, í stundvísi á styttri flugleiðum, í stundvísi á lengri flugleiðum og skilvísi farangurs. Í tilkynningu segir að Icelandair sé í fyrsta sæti í fullnustu fluga með 100% árangur, í öðru sæti í stundvísi á lengri flugleiðum, með 86,5% árangur, í þriðja sæti í stundvísi á styttri og meðallöngum flugleiðum með 90,2% árangur og í sjötta sæti í skilvísi farangurs með 7,6/1000 seinkun farangurs. Könnunin nær til fimm mánaða tímabils frá nóvember til mars. "Þetta er mjög ánægulegur árangur og hann kemur ekki á óvart því stundvísi okkar í vetur hefur verið sú besta í sögu Icelandair", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. "Við vorum heppin í vetur hvað varðar utanaðkomandi þætti sem hafa mikil áhrif, eins og veður, aðra flugumferð og bilanir. En við höfum einnig gert átak til að auka stundvísi og á síðasta ári tók til starfa ný stjórnstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli, sem hefur það m.a. að markmiði að reka leiðakerfi félagsins frá degi til dags, fyrirbyggja hugsanlegar tafir og bregðast hratt við óvæntum uppákomum. Við sjáum góðan árangur af þessum breytingum eins og þessi samanburður evrópskra flugfélaga sýnir.Góð stundvísi flugfélags byggir á samvinnu sterkrar liðsheildar og auk stjórnstöðvarinnar er þáttur áhafna um borð og viðhaldsstöðvar í þessum árangri stór," segir Birkir Hólm. Stundvísi flugfélaga er mæld með þeim hætti að ef innan við 15 mínútur líða á milli áætlunartíma og raunverulegrar brottfarar frá hliði telst flugvélin hafa farið á réttum tíma.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira