Síminn gerir samning um þriðja sæstrenginn 23. júní 2009 13:57
Síminn hefur nú gert samning við Greenland Connect um sæstreng til Kanada. Síminn er eina íslenska fjarskiptafyrirtækið sem er með samninga um þrjá sæstrengi til og frá Íslandi og eykur þetta öryggi og bætir þjónustu enda er um fimmfalda aukningu á bandbreidd til Ameríku að ræða. Í tilkynningu segir að Síminn sé fyrsta fyrirtækið sem gerir samning um bandvídd á Greenland Connect en sæstrengurinn var lagður í marsmánuði og er umferð á honum tiltölulega lítil enn sem komið er. Flutningur gagna um sæstrenginn þýðir að niðurhal frá Ameríku verður hraðara enda þurfa gögnin ekki að fara um Evrópu fyrst líkt og þegar þau fara um Farice eða Cantat-3. Viðskiptavinir Símans eiga því möguleika á betri svartíma þegar þeir eiga samskipti vestur um haf og upplifa t.a.m. YouTube og önnur slík vefsvæði í bestu mögulegum gæðum. Auk þess mun samningurinn bæta þjónustu við fyrirtæki sem eru með starfsstöðvar í Bandaríkjunum eða eiga mikil viðskipti þar. Síðast en ekki síst eykst öryggi viðskiptavina Símans því Síminn getur valið um að senda gögn um tvo sæstrengi ef samband rofnar við einn vegna bilunar. „Það er mjög ánægjulegt að fyrsti samningur okkar við fjarskiptafyrirtæki um þjónustu á nýja sæstrengnum, Greenland Connect, skuli vera við Símann, sem er leiðandi fyrirtæki í fjarskiptum á Íslandi. Ég er þess fullviss að viðskiptavinir Símans muni finna fyrir því að bandbreiddin til og frá Ameríku verður mun meiri en þeir hafa áður þekkt," segir Brian Buus Pedersen, forstjóri Tele Greenland. „Við erum afar ánægð með að geta boðið Íslendingum þetta aukna öryggi enda lítum við svo á að Síminn sinni mikilvægu öryggishlutverki. Hér er um að ræða glænýjan sæstreng sem er lagður töluvert eftir að Farice og Cantat-3 eru lagðir og því með allar nýjustu tækniútfærslur auk þess sem gert er ráð fyrir að hægt verði að stækka hann í framtíðinni. Með þessum sæstreng opnast Símanum margir valkostir sem verður spennandi að vinna úr," segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira