Byr og HR í samstarf um fjármálalæsi 23. júní 2009 16:14
Byr sparisjóður og Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík hafa gert með sér samstarfssamning sem miðar að því að efla fjármálalæsi Íslendinga. Byr verður aðalstyrktaraðili stofnunarinnar en á hennar vegum verða stundaðar rannsóknir og efnt til námskeiða sem miða að bættu fjármálalæsi þjóðarinnar. „Hér er um afar þýðingarmikið samstarf að ræða því stuðningur Byrs við þetta verkefni skiptir sköpum. Háskólinn í Reykjavík vill með rekstri Stofnunar um fjármálalæsi stuðla að því að fólk nái betri tökum á sínum fjármálum því með bættu fjármálalæsi hefur það tækifæri til að móta fjárhagslega framtíð sína út frá því efnahagsumhverfi sem það býr við," segir Þorlákur Karlsson, forseti viðskiptadeildar HR í tilkynningu um málið. „Það er auðvitað hagur allra að fólk þekki fjármálaumhverfið og sé meðvitað um fjárhagslega heilsu sína. Við þær aðstæður sem nú ríkja í efnahagsmálum er þetta mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við hjá Byr erum stolt og ánægð með að fá að taka þátt í þessu verkefni með Háskólanum í Reykjavík," segir Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri. Markmið Stofnunar um fjármálalæsi við HR eru m.a. þau að Íslendingar geti tekið upplýstar ákvarðanir er varða efnahagslega velferð sína og hugsað fyrir ólíkum þörfum eftir æviskeiðum. Að sögn Breka Karlssonar, forstöðumanns stofnunarinnar er starfsemin í mótun og undirbúningi. Í vor var m.a. efnt til nokkurra námskeiða fyrir viðskiptavini Byrs en með haustinu hefst starfsemin fyrir alvöru. Á vef Byrs sparisjóðs, www.byr.is er að finna próf þar sem fólk getur metið fjárhagslega heilsu sína en prófið gefur raunsanna mynd af þekkingu viðkomandi á fjármálum. Prófið var samið sérstaklega fyrir Byr í samvinnu við Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira