Rafrænar dagbækur Trackwell í Færeyjum 3. júní 2009 00:01 Steingrímur Gunnarsson Trackwell stefnir á að rafrænar afladagbækur verði í öllum færeyskum fiskiskipum innan tíðar. Mynd/Anton „
Við ætlum að prufukeyra rafrænu afladagbækurnar í fjórum skipum í Færeyjum í sumar en vonumst til að þær verði settar upp í öllum færeyska fiskiskipaflotanum," segir Steingrímur Gunnarsson, sölustjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Trackwell. Færeyski flotinn telur áttatíu skip. Í síðasta mánuði var undirritaður samningur milli fyrirtækisins og Føroya Reiðarafelag (Landssamtaka færeyskra útgerðarmanna) um afhendingu á rafrænum afladagbókum um borð í færeyskum fiskiskipum. Færeyingar hafa unnið að uppbyggingu miðlægs gagnagrunns sem heldur utan um skráningar um fiskafurðir allt frá veiðum til vinnslu og sölu afurða og eru gögn úr afladagbókum Trackwell fyrsti hlekkur keðjunnar. Ákveðið var að ganga til samstarfs við Trackwell vegna reynslu fyrirtækisins í svipuðum verkefnum, en hugbúnaður frá Trackwell er meðal annars notaður í rafrænar afladagbækur íslenskra fiskiskipa og um næstu áramót eiga öll skip stærri en fimmtán brúttólestir að hafa tekið upp slíkan búnað. - jab
Markaðir Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Sjá meira