Skráning Össurar í Kaupmannahöfn viðskipti ársins 30. desember 2009 05:00 Talsverður áhugi varð á stoðtækjafyrirtækinu Össuri á Norðurlöndunum um það leyti sem hlutabréf þess voru skráð á markað í Kaupmannahöfn. Markaðurinn/GVA
Níu viðskipti komust á blað sem viðskipti ársins, að mati dómnefndar Markaðarins. Dómnefndin viðurkenndi að valið væri erfitt. Sumir sögðu mörg viðskipti hafa verið góð, aðrir að engin gætu fallið í þann flokk. 1. sætiSkráning hlutabréfa Össurar í kauphöllina í Kaupmannahöfn í Danmörku í byrjun september fékk flest stig dómnefndar þetta árið. „Með því tókst fyrirtækinu að nýta sér styrk kjölfestufjárfestis til að tryggja framtíðarfjármögnun fyrirtækisins," sagði einn dómnefndarmanna í rökstuðningi sínum fyrir valinu. Aðrir bentu á frábært uppgjör Össurar við erfiðar aðstæður auk þess að gengi hlutabréfa fyrirtækisins hafi hækkað mikið upp á síðkastið. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir skráninguna afleiðingu af hruninu hér í fyrra. „Þegar gjaldeyrishöftin voru sett á í nóvember gátu erlendir hluthafar okkar ekki hugsað sér að vera með verðmæti föst hér á landi. Þótt hluthafarnir erlendu væru mjög ánægðir með félagið sjálft urðu þeir afar óhressir með staðsetningu þess. Við ákváðum því að skrá félagið á þeim stað sem erlendir hluthafar treysta best," segir Jón og bætir við að Danmörk hafi verið rökrétt skref. Stærsti hluthafahópurinn sé þaðan, svo sem lífeyrissjóðurinn ADP. Þá sé þar í landi skráður góður hópur af fyrirtækjum á heilbrigðissviði. Skráning fyrirtækisins ytra fékk talsverða umfjöllun í dönskum fjölmiðlum. Jón segir þrátt fyrir þetta erfitt að vera Íslendingur ytra. „Það er í raun ekki jákvætt fyrir fyrirtækið að ég skuli vera Íslendingur," segir hann en bætir við að þetta sé skammtímaástand sem muni líða hjá. „Við munum vinna okkur traust, en það tekur tíma." Talsverð eftirspurn varð eftir hlutabréfunum og þurrkuðu lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar þau hlutabréf sem í boði voru. Þetta skilaði sér í lítilli hreyfingu með bréfin þar eð fjárfestar voru tregir til að selja nema fyrir hærra verð en markaðurinn bauð upp á. Ný hlutabréf Össurar voru gefin út ytra í nóvember í því skyni að auka flotið en við það komst hreyfing á veltuna. Aukningin jafngilti því að hlutafé fyrirtækisins var aukið um tæp sjö prósent. Jón segir verðmyndun hlutabréfanna mun betri í dag en áður. Fjögur fyrirtæki greina Össur nú ytra. Þar á meðal er sænski bankinn SEB Enskilda, sem sá um skráningu fyrirtækisins í Kaupmannahöfn. Í nýlegu og verulega uppfærðu verðmati Enskilda á stoðtækjafyrirtækinu segir að uppgjör Össurar á þriðja ársfjórðungi hafi verið talsvert yfir væntingum þrátt fyrir vandræðagang í Bandaríkjunum. Félagið eigi mikið inni enda vonir bundnar við rafeindastýrðar vörur Össurar með gervigreind auk þess sem vænta megi betri sölu í öðrum vöruflokkum í nánustu framtíð. Á meðal varanna sem áætlað er að komi á markað á nýju ári er nýjasta kynslóð rafdrifinna Power-hnjáa. Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu, sagði í samtali við Fréttablaðið á dögunum, mikla eftirspurn eftir bréfunum ekki koma sér á óvart enda rekstur Össurar sterkur og sjóðstreymið frábært. Skiljanlega vilji því þeir fjárfestar sem keyptu bréf fyrirtækisins á genginu fimm danskar krónur á hlut ekki selja þau í bili. Hæst fóru þau ytra í 6,15 danskar krónur á hlut, eða sem nemur 150 íslenskum krónum. Verðmat Enskilda hljóðar hins vegar upp á 8,2 krónur á hlut, eða 200 íslenskar krónur.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira