Yfir 200.000 Danir eru nú á vanskilaskrá 20. október 2009 13:48
Yfir 200.000 Danir eru nú á vanskilaskrá (RKI) í landinu og hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 2006. Stöðugt bætist í þennan hóp að því er segir í frétt um málið í Politiken. Hinn dæmigerði skuldsetti Dani er á aldrinum 21 til 30 ára og býr á Sjálandi að því er kemur fram í nýjum tölum sem RKI hefur tekið saman. Samkvæmt þeim eru sjö af hverjum hundrað Dönum, sem eiga í vanskilum með skuldir sínar, á tvítugsaldrinum en sex af hverjum hundrað eru á þrítugs- og fertugsaldrinum. Fram kemur að tíu af hverjum hundrað Dönum á vanskilaskrá eiga heima á Sjálandi, fyrir utan Kaupmannahöfn. Hlutfallslega fæstir eru hinsvegar frá Norður-Sjálandi, Fanö og Læsö. Meðalskuldir þeirra sem eru í vanskilum nema 42.000 dönskum kr. eða rúmlegra milljón kr. Það er svo elsti hópurinn, á aldrinum 61 til 70 ára sem er með mestu skuldirnar eða að meðaltali 57.500 danskar kr. Heildarskuldir fyrrgreindra 200.000 Dana nema 8,5 milljörðum danskra kr. eða um 210 milljörðum kr.
Mest lesið Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira