Lausn Landsbankans liggur hjá seðlabanka Evrópu 20. október 2009 00:01 Landsbankinn í Lúxemborg Veðlán Landsbankans kunna að hamla styrkingu krónunnar. Seðlabanki Íslands og skilanefnd Landsbankans hafa árangurslaust reynt að semja um lánin sem samanstanda af íslenskum ríkisskuldabréfum.
Hugsanlegt er að heimtur úr búi gamla Landsbankans verði meiri en fram kom í samkomulagi á milli gamla og nýja bankans um síðustu helgi. Ekki er útilokað að endurheimtur kunni að vera á milli 93 til 97 prósent sem að mestu fara upp í Icesave-skuldbindinguna. Að hluta skýrist það af hugsanlegri hækkun á virði eigna bankans en mestu munar þó um niðurstöðu samninga við evrópska seðlabankann um uppgjör vegna veðlána sem Landsbankinn í Lúxemborg fékk hjá evrópska seðlabankanum skömmu áður en hann fór í þrot í fyrra. Í nýjasta eignamati skilanefndar Landsbankans kemur fram að ætlað verðmæti eigna nemi 1.190 milljörðum króna á móti skuldum upp á 1.319 milljarða króna. Miðað við þetta endurheimtast um níutíu prósent forgangskrafna, sem eru að mestu kröfur tengdar Icesave-innlánsreikningunum. Lánin sem Landsbankinn í Lúxemborg fékk hjá evrópska seðlabankanum hljóða upp á rúma 2,2 milljarða evra, jafnvirði rúmra fjögur hundruð milljarða króna á núvirði. Þau voru að mestu notuð til að fjármagna rekstur Landsbankans hér. „Þetta er viðkvæmt mál,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans. Hann bendir á að skilanefndin geri ekki ráð fyrir verulegum heimtum á eignum dótturfélags Landsbankans í Lúxemborg í eignamati gamla bankans. „Skilanefndin hefur haft vaðið fyrir neðan sig og metur endurheimtur hóflega. Því geti endurheimtuhlutfall hækkað miðað við það sem gert er ráð fyrir náist eðlileg niðurstaða um uppgjör búsins í Lúxemborg,“ segir Páll en bætir við að útilokað sé að segja til um hversu mikið heimtur kunni að hækka. „Menn vita það ekki,“ segir hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira