Viðskipti innlent

SPRON og Frjálsi sækja um slitameðferð

Bráðabirgðastjórn SPRON og stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hafa sótt um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til laga um fjármálafyrirtæki.

Í tilkynningu segir að bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir félagsins og endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi.

Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki.

Í tilkynningu frá Frjálsa fjárfestingarbankanum segir m.a. að eftir að bráðabirgðastjórn SPRON var skipuð tók hún yfir stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. og hefur unnið að endurskipulagningu starfseminnar miðað við breyttar forsendur. Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×