Upplýsingaskylda hvílir á útgefendum segir kauphöllin 5. maí 2009 09:51
Kauphöllin hefur sent frá sér yfirlýsingu Í tilefni af ákvörðun nokkurra útgefenda skuldabréfa, sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöllinni um að birta ekki ársuppgjör. Kauphöllin vil árétta að eftir sem áður hvíli upplýsingaskylda á útgefendum. „Þrátt fyrir að útgefendur skuldabréfa, þar sem nafnverð hverrar einingar á útgáfudegi jafngilti a.m.k. 50.000 evrum, séu undanþegnir reglulegri upplýsingaskyldu, hvílir engu að síður upplýsingaskylda á útgefendum samkvæmt öðrum ákvæðum laga... um verðbréfaviðskipti, einkum XIII. kafla," segir í yfirlýsingunni. Samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti er útgefanda skylt að birta almenningi á EES allar þær innherjaupplýsingar sem varða hann eins fljótt og auðið er og á jafnræðisgrundvelli. „Samkvæmt 120. gr. laganna er með innherjaupplýsingum átt við (1) nægjanlega tilgreindar upplýsingar sem ekki hafa verið gerðar opinberar og (2) varða beint eða óbeint útgefendur fjármálagerninga, fjármálagerningana sjálfa eða önnur atriði og eru (3) líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármálagerninganna (4) ef opinberar væru, eins og nánar er kveðið á um í reglugerð.... Á útgefanda skuldabréfa hvílir rík upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga. Engu breytir þótt útgefandi sé undanþeginn skyldu til birtingar reglulegra upplýsinga. Þótt útgefanda sé ekki skylt að birta opinberlega ársreikning gæti hann innihaldið innherjaupplýsingar sem rétt væri að birta opinberlega. Áréttað skal að greiðsluerfiðleikar leysa útgefanda ekki undan upplýsingaskyldu. Af þessu má sjá að umrædd grein sem útgefendur skuldabréfa hafa vísað til, til réttlætingar á því að birta ekki ársuppgjör veitir takmarkað svigrúm til að fresta eða fella niður upplýsingagjöf um fjárhagslega afkomu útgefanda. Í þessu ljósi mun Kauphöllin á næstu dögum skoða hvert og eitt mál varðandi umræddar ákvarðanir útgefenda og fjalla um þau samkvæmt þeim verkferlum sem hún fylgir um mál af þessu tagi. Að lokinni skoðun verður gripið til viðeigandi ráðstafana eftir atvikum og aðstæðum."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira