Ríkið tilbúið fyrir harðan vetur 2. október 2009 05:30 Jón Bjarki Bentsson „
Halli á fjárlögum er meiri en áætlað var í sumar. Því sýnist manni sem ríkissjóður sjái fram á meiri fjárþörf en áður var ráðgert," segir Jón Bjarki Bentson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka. Gert var ráð fyrir 152 milljarða króna halla á fjárlögum á þessu ári. Í fjárlögum sem lögð voru fram í gær er hins vegar reiknað með 182,3 milljarða halla á þessu ári og 87,4 milljarða halla á næsta ári. Lánasýsla ríkisins greindi frá því á þriðjudag að eftirspurn eftir óverðtryggðum ríkisbréfum hafi verið meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og hafi ársáætlun upp á 145 milljarða króna útgáfu verið náð í ágúst. Því sé stefnt að allt að sextíu milljarða króna ríkisbréfaútgáfu á árinu til viðbótar. Erlendir fjárfestar hafa öðrum fremur fjárfest í ríkisbréfum sem þessum og eiga nú rétt rúman helming þeirra. Helst hafa þeir sótt í ríkisbréf til skemmri tíma sem bera á bilinu 7,15 til 8,5 prósenta vexti. Innistæður ríkissjóðs hjá Seðlabankanum vegna útgáfu ríkisbréfa námu í ágústlok tæpum 203 milljörðum króna. Vextir á innlánsreikningum Seðlankans eru 9,5 prósent og hefur ríkissjóður því 1,0 til 2,3 prósenta vaxtatekjur af innistæðunni. Jón Bjarki bendir á að innistæðan endurspegli lausafjárstöðu ríkissjóðs. Ljóst sé að ríkið hafi undirbúið sig ágætlega fyrir erfiðan vetur með útgáfu ríkisbréfa og gefi það stjórnvöldum svigrúm til að mæta hallarekstri ef í harðbakka slær. - jab
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira