Engar athugasemdir við yfirtöku NBI á Parlogis 2. október 2009 15:05
Samkeppniseftirlitið telur að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna kaupa NBI (Nýja Landsbankans) á Parlogis á grundvelli samkeppnislaga. Fjallað er um málið á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins. Þar segir að þann 24. september s.l. barst Samkeppniseftirlitinu samrunaskrá vegna kaupa NBI hf. á Parlogis hf í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Í samrunaskránni kemur fram að kaupin hafi farið fram með þeim hætti að NBI hafi leyst til sín allt hlutafé í Parlogis frá þrotabúi DM ehf. með kaupsamningi, dags. 7. september 2009. Parlogis starfar á markaði fyrir vörustjórnun og býður viðskiptavinum sínum upp á þjónustu við birgðastýringu, innkaup, innflutning, tollafgreiðslu, geymslu, mótttöku pantana, dreifingu innanlands, reikningagerð og innheimtu. Misjafnt er hversu víðtæka þjónustu viðskiptavinir fyrirtækisins kaupa. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í vörustjórnun fyrir heilbrigðisstofnanir, lyfjafyrirtæki og sérverslanir með heilsutengdar vörur. Í samrunaskrá kemur fram að helsti keppinautur Parlogis sé lyfjadreifingarfyrirtækið Distica hf. sem tengist lyfjainnflutningsfyrirtækinu Vistor hf. NBI er fyrirtæki sem tók við innlendum inneignum Landsbanka Íslands hf. sem og helstu eignum bankans sem tengdust innlendri starfsemi hans. NBI starfar á fjármálamarkaði og er að fullu í eigu íslenskra stjórnvalda. Samkvæmt upplýsingum frá NBI hefur bankinn ekki annarra hagsmuna að gæta á þeim mörkuðum sem um er að tefla. Fyrirtækin tvö starfa samkvæmt framansögðu ekki á sama markaði. Samkeppniseftirlitið telur að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira