Viðskiptaráð og SA vara við skattastefnu stjórnvalda 2. október 2009 17:39 Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Mynd/GVA
Samtök aðila í atvinnurekstri vara við þeirri skattastefnu stjórnvalda að leggja nýjar tegundir gjalda á atvinnureksturinn og hvetja til þess að megináherslan verði lögð á uppbyggingu og sköpun starfa. Þetta kemur fram í sameiginlegri áyktun Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands. „Af þeim tveimur valkostum sem stjórnvöld standa frammi fyrir, þ.e. að hækka skatta eða draga úr útgjöldum, er mjög mikilvægt að stjórnvöld leggi áherslu á seinni leiðina," segir í ályktuninni. Þar segir að í stöðuleikasáttmála stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sé kveðið á um að skattar verði lækkandi hlutfall aðlögunaraðgerða eftir yfirstandandi ár. SA og Viðskiptaráð segja mikilvægt að staðið verði við þetta. Umtalsvert svigrúm sé til hagræðingar í rekstri hins opinbera enda hafi útgjöld þess vaxið mikið á undanförnum árum. „Auk þess er alls ekki fyrirséð hver áhrif verulegra skattahækkana yrðu við þær viðkvæmu aðstæður sem ríkja í efnahagslífinu. Til þess að skatttekjur aukist þarf annað hvort að auka hlutfallslega skattheimtu eða breikka þá skattstofna sem mynda tekjurnar. Óvíst er hvort skattahækkanir skili hærri skatttekjum þar sem aukin skattbyrði leiðir til minnkandi umsvifa og þar af leiðandi minni skattstofna." Undir ályktunina skrifa Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira