Forsendur efnahagsspáa brostnar á fyrsta degi 2. október 2009 11:51
Greining Íslandsbanka bendir á að efnahagsspár bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fjármálaráðuneytisins gera ráð fyrir verulegum fjárfestingum tengdum orkufrekum iðnaði á næstu árum. Viðvarandi gjaldeyrishöft, breyttar áherslur í umhverfisráðuneyti og áform um aukna skattheimtu af orkunotkun er væntanlega ekki til þess fallið að auka líkur á að framangreind forsenda standist. Greiningin fjallar um spárnar í Morgunkorni sínu. Þar segir að lítill munur er á þeim tveim efnahagsspám fyrir Ísland sem litu dagsins ljós í gær, en bæði fjármálaráðuneytið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birtu þá sínar spár. Spár þeirra hljóða upp á um 8,4-8,5% samdrátt landsframleiðslu í ár og um 1,9-2,0% samdrátt til viðbótar á næsta ári. Í báðum spánum er reiknað með 8,6% atvinnuleysi í ár og að það fari upp í 10,5-10,6% á næsta ári. Þá er í báðum spánum reiknað með því að hratt dragi úr verðbólgu á næstunni og að hún verði 4,4-5,0% á næsta ári. Miðað við þá miklu óvissu sem er í efnahagsmálum er hér um ótrúlega lítinn mun í spánum að ræða. Er það ekki nýtt að efnahagspá ráðuneytisins er keimlík spá AGS. Í apríl á þessu ári birti AGS spá um 10,2% samdrátt hér á landi í ár en maí birti ráðuneytið spá um að samdrátturinn yrði 10,6% í ár. Þá var AGS að spá verðbólgu í 10,6% í ár og atvinnuleysi í 9,7% en fjármálaráðuneytið verðbólgu í 10,2% og atvinnuleysinu í 9,6%. Lítill munur á þessum spám ætti svo sem ekki að koma á óvart þar sem reikna má með því að þær byggi á viðlíka aðferðarfræði og forsendum. AGS á nokkuð náið samstarf við fjármálaráðuneytið í því uppbyggingarstarfi sem nú er og mótast spár beggja af þeirri meginforsendu að aðgerðaráætlun stjórnvalda og AGS sem sett var saman eftir hrun bankanna í lok árs í fyrra gangi upp í megindráttum. Þannig hvíla spárnar á sömu forsendum um aðgerðir í opinberum fjármálum og peningamálum. Einnig eru þar sömu forsendur um stöðugleika krónunnar sem er eitt af megin áhersluatriðunum í áðurnefndri aðgerðaráætlun.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira