Faxaflóahafnir: Gámaflutningar minnka um 35% í ár 2. október 2009 08:36
Útlit er fyrir að gámaflutningar hjá Faxaflóahöfnum muni dragast saman um 35% í ár miðað við árið í fyrra. Er þessi samdráttur töluvert meiri en í flestum öðrum höfnum í Evrópu. Raunar er aðeins höfnin í Barcelóna með álíka mikinn samdrátt. Fjallað er um málið á heimasíðu Faxaflóahafna. Þar segir að þegar litið er til vöruflutninga í tonnum talið þá blasir samdrátturinn við þannig að innflutningur hefur fallið verulega en útflutningur hefur eilítið aukist. Þegar best lét , árið 2007, voru heildar vöruflutningar Faxaflóahafna liðlega 3 milljónir tonna. Innflutningur var um 2.1 milljónir tonna en útflutningur um 870 þúsund tonn. Á árinu 2008 höfðu heildar flutningar minnkað um 17% eða í tæpar 2.6 milljónir tonna. Innflutningur hafði minnkað um 28% eða í 1.6 milljóna tonna en útflutningur aukist um tæp 10% eða í 907 þúsund tonn. Á árinu 2009 er ljóst að vöruskiptajöfnuður hefur verið hagstæður um nokkurt skeið en það merkir m.a. að útflutningstekjur eru meiri inn útgjöld af innflutningi. Þessa þróun má glöggt sjá í tekjum Faxaflóahafna af vörugjöldum þar sem tekjur af útflutningi eru samkvæmt áætlun en tekjufall fyrirtækisins af minnkandi innflutningi er verulegt og má reikna með að það verði um 20% á milli áranna 2008 og 2009. Hvað innflutninginn varðar þá er mestur samdrátturinn í byggingarvöru og bifreiðainnflutningi, en það kemur eflaust engum á óvart. Hins vegar má einnig sjá fækkun vörutegunda í öðrum vöruflokkum. Af flutningum síðustu þriggja mánaða að dæma viriðist innflutningur nú vera nokkuð stöðug tonnatala á milli mánaða og spurning hvort einhverjum botni sé náð. Eflaust munu ýmis lögmál hafa þar áhrif svo sem gengi, kaupmáttur o.fl., en miðað við útlit næstu mánaða verður tæplega um aukningu að ræða, en í besta falli óbreytta stöðu. „Hið ánægjulega tengist hins vegar útflutningi sem hefur farið vaxandi og auknu fiskmagni til hafnarinnar. Því blasir við að brýnast er að búa í haginn fyrir aukna framleiðslu og verðmætaaukningu sjávarafurða þannig að útflutningstekjur skili þjóðarbúinu og Faxaflóahöfnum auknum tekjum, segir í lok umfjöllunarinnar.
Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira