SPM var ekki lengur varinn gegn fullnustuaðgerðum kröfuhafa 7. júlí 2009 08:57
Að baki ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins (FME) að skipa nýja stjórn yfir Sparisjóði Mýrarsýslu lá sú staðreynd að SPM naut ekki lengur verndar gegn fullnustuaðgerðum kröfuhafa. Sú staða kom upp þegar greiðslustöðvun SPM rann út þann 30. júní s.l. Samkvæmt upplýsingum frá FME óskaði SPM því eftir því að sparisjóðnum yrði skipuð bráðabirgðastjórn og tók FME beiðni sjóðsins til greina enda ljóst að aðstæður SPM eru með þeim hætti að slíkt var nauðsynlegt samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Bráðabirgðastjórn skal svo fljótt sem verða má gera nauðsynlegar ráðstafanir til að fá yfirsýn yfir fjárhag Sparisjóðs Mýrasýslu en skuldirnar nema tæpum 40 milljörðum kr. Á meðan bráðbirgðastjórn ræður yfir sjóðnum gilda sömu takmarkanir á heimildum til að beita fullnustuaðgerðum og öðrum þvingunarúrræðum gagnvart honum og ef sjóðurinn hefði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Í fyrravor stóð til að Kaupþing myndi yfirtaka SPM en forsendur fyrir því brustu í október þegar FME skipaði skilanefnd yfir Kaupþing í kjölfar bankahrunsins. Í framhaldinu hóf SPM viðræður við erlenda lánadrottna um lækkun og umbreytingu á stofnfé með samruna við Nýja Kaupþing sem lokatakmark. Sökum þessa undirrituðu helstu kröfuhafar samkomulag um tímabundna greiðslufrystingu í janúar s.l. Það samkomulag rann svo út í apríl. Í framhaldinu fékk SPM svo greiðslustöðvun sem rann út um síðustu mánaðarmót.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira