Íslenskir launamenn með þeim ódýrustu í Vestur-Evrópu 7. júlí 2009 13:14
Íslenskir launamenn eru nú mun ódýrari starfskraftur í samanburði við nágrannalönd okkar en raunin var undanfarin ár. Raunar er vandfundið land í Vestur-Evrópu með ódýrari launamenn en Ísland. Lækkun raungengis miðað við hlutfallslegan launakostnað nemur 29% ef annar fjórðungur þessa árs er borinn saman við sama tímabil í fyrra, og sé farið tvö ár aftur í tímann nemur lækkunin rúmlega 42%. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta þýði að kraftar íslenskra launþega hafa að jafnaði lækkað í verði gagnvart starfsbræðrum þeirra í viðskiptalöndum okkar sem þessu nemur. Trúlega er það land vandfundið í Vestur-Evrópu þar sem vinnuafl er að jafnaði ódýrara þessa dagana. Þessi þróun hjálpar útflutningsatvinnuvegum, sem og þeirri innlendu starfsemi sem á í samkeppni við innflutning. Á hinn bóginn gerir hin mikla lækkun kaupmáttar í samanburði við nágrannalöndin það meira freistandi fyrir íslenska launamenn að flytja búferlum en ella, sér í lagi ef kaupmáttur þeirra á erlendri grundu helst lágur um lengri tíma eftir að atvinnuástand batnar á nýjan leik í nágrannalöndum okkar. Raungengi íslensku krónunnar er nú líklega lægra en nokkru sinni áður frá því hún sagði skilið við hina dönsku stóru systur sína árið 1922. Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabanka lækkaði raungengi krónu á öðrum fjórðungi ársins um ríflega 10% frá fyrsta ársfjórðungi ef miðað er við hlutfallslegt neysluverð en um rúm 13% ef miðað er við hlutfallslegan launakostnað. Við útreikning á raungengi eru breytingar á nafngengi krónu í raun leiðréttar fyrir hlutfallslegum breytingum verðlags og launa hérlendis og í viðskiptalöndum okkar. Því má segja að Ísland hafi verið 10% ódýrara heim að sækja á vordögum en í upphafi árs, en að kaupmáttur íslenskra launþega á erlendri grundu hafi minnkað um 13% á sama tíma.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira