Sekt Véla og Verkfæra ehf. lækkuð um 5 milljónir 13. júlí 2009 11:22
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins um að Vélar og Verkfæri ehf. hefðu misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Hinsvegar sektin fyrir athæfið lækkuð um 5 milljónir kr., úr 15 og í 10 milljónir kr. Fjallað er um málið á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins. Þar segir að þann 8. apríl sl. komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Vélar og Verkfæri ehf. hefðu misnotað markaðsráðandi stöðu sína við sölu á efni til að framleiða höfuðlyklakerfi. Þetta gerði fyrirtækið með því að koma í veg fyrir að þjónustuaðilar höfuðlyklakerfa flyttu inn og seldu höfuðlyklakerfi frá öðrum framleiðendum en ASSA í Svíþjóð og með því að vinna gegn því að aðrir erlendir framleiðendur næðu fótfestu á íslenskum markaði. Brot fyrirtækisins var talið alvarlegt og talið hafa áhrif á sölu á tilbúnum höfuðlyklakerfum beint til neytenda. Vegna þessa brots var Vélum og Verkfærum gert að greiða 15.000.000 kr. stjórnvaldssekt. Vélar og Verkfæri skutu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og kröfðust þess að hún yrði felld niður eða sektir lækkaðar verulega. Fyrirtækið gerði m.a. athugasemdir við skilgreiningu markaða málsins, stöðu þess á markaði og meinta misnotkun þess á markaðsráðandi stöðu. Í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem birtur er í dag, er staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Vélar og Verkfæri séu í markaðsráðandi stöðu og að um einkakaupasamninga markaðsráðandi fyrirtækis hafi verið að ræða sem séu til þess fallnir að útiloka samkeppni og fari í bága við 11. gr. samkeppnislaga. Áfrýjunarnefndin taldi hins vegar þá skilgreiningu Samkeppniseftirlitsins að sala á efni til framleiðslu höfuðlyklakerfis tilheyri sérstökum markaði of þrönga en féllst á þau rök eftirlitsins að höfuðlyklakerfi tilheyrðu sérstökum markaði og jafnframt að ekki væri staðganga á milli þess markaðar og annarra aðgangskerfa í þeim mæli að það geti haft áhrif á markaðsskilgreininguna. Þá benti áfrýjunarnefndin á að Vélar og Verkfæri væru eini aðilinn sem flutt hefði inn efni til framleiðslu á höfuðlyklakerfum frá árinu 2002. Allir aðrir seljendur á markaðnum væru háðir fyrirtækinu um efnisöflun og þar með talið kerfið sjálft. Þó svo vísbendingar lægju fyrir um að hægt væri að komast inn á markaðinn án verulegra vandkvæða yrði að horfa til þess að efnahagslegur styrkleiki Véla og Verkfæra væri töluverður og að hinn skilgreindi markaður velti einungis tiltölulega lágum fjárhæðum á ári. Því væru ekki miklir hagsmunir í því fólgnir fyrir nýja aðila að koma inn á hann. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi hæfilegt að lækka sekt Véla og Verkfæra í 10.000.000 kr. Var í því sambandi vísað til þess að rétt væri að horfa til stærðar viðkomandi markaðar og þeirra hagsmuna sem við hann væru tengdir.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira