Kaupþing endurgreiðir öll innlán í erlendum útibúum 13. júlí 2009 15:28
Um leið og Kaupþing hefur lokið við að endurgreiða þýskum eigendum Edge reikninga þar í landi hefur bankinn greitt öll innlán í erlendum útibúum móðurfélagsins.Þetta kemur fram í uppfærðri skýrslu skilanefndar Kaupþings sem birt er á netinu. Þar segir: „Hinn 22. júní tilkynnti Kaupþing að endurgreiðslur hefðu hafist þegar Bankinn sendi greiðslufyrirmæli til þýskrar fjármálastofnunar um að endurgreiða innstæður um 20.000 viðskiptavina. Endurgreiðslur héldu áfram út júní og er vonast til að þær berist til ríflega 34.000 viðskiptavina Edge á næstu vikum.Þegar þessi endurgreiðsla hefur farið fram mun Kaupþing banki hafa endurgreitt öll innlán sem skilgreind voru sem forgangskröfur skv. íslenskum lögum, það er öll innlán í erlendum útibúum móðurfélagsins."Í skýrslunni er einnig rætt um fjárhagsstöðu Kaupþings og nánustu framtíð en eins og fram hefur komið í fréttum hefur Fjármálaeftirlitið (FME) veitt lokafrest til endurskipulagningar bankanna þann 17. júlí.Um þetta segir í skýrslunni: „Vegna leiðréttingar á ráðstöfun eigna og skulda í samræmi við ákvörðun FME hækkuðu lán Kaupþings til viðskiptavina um u.þ.b. 190 milljarða íslenskra króna að nafnvirði, þar af voru um 90 milljarðar óveðsettir. Þetta ætti að öðru óbreyttu að leiða til þess að upphæð fjármálagerningsins lækki."Hvað aðrar fjármálahreyfingar varðar segir í skýrslunni að vegna lokunar og sölu dótturfélagsins í Svíþjóð hækkuðu lán Kaupþings til viðskiptavina um u.þ.b. 110 milljarða íslenskra króna, en fjárfestingar í dótturfélögum og víkjandi lán Kaupþings til dótturfélagsins sem bókað var sem lán til lánastofnana lækkaði um sömu upphæð."Vegna sölu á tilteknum eignum hafa lán til viðskiptavina lækkað um u.þ.b. 18 milljarða íslenskra króna að nafnvirði og lausafjárstaðan aukist á móti. Þó verður að taka tillit til þess að eignirnar seldust ekki allar á nafnvirði.Vegna endurgreiðslna lána hefur heildarupphæð lána til viðskiptavina lækkað og sjóðsstaðan batnað sem því nemur."
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira