Skuldastaða þjóðarbúsins betri en tölur segja til um 4. september 2009 12:30 "
Erlend staða þjóðarbúsins er öllu hagfelldari heldur en ætla mætti við fyrstu sýn, þótt vissulega sé hún neikvæðari en góðu hófi gegnir." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka sem segir að óvissa ríki um hver sé hin raunverulega erlenda skuldastaða þjóðarbúsins. Sem kunnugt er birti Seðlabankinn í gær tölur um erlenda stöðu þjóðarbúsins í júnílok. Líkt og með viðskiptajöfnuðinn verður að taka þeim tölum með þeim fyrirvara að áhrif gömlu bankanna eru þar mikil. Hrein erlend staða við útlönd var neikvæð um 5.954 milljarða kr. Þessi háa tala endurspeglar þær ógöngur sem íslenska bankakerfið var komið í fyrir ári síðan og leiddu til setningu neyðarlaga í októberbyrjun. Hins vegar er ljóst að stór hluti hennar verður afskrifaður með uppgjöri gömlu bankanna. Sé efnahagur gömlu bankanna skoðaður sérstaklega kemur í ljós að erlendar eignir þeirra voru 5.673 milljarðar kr. um mitt ár en erlendar skuldir 11.020 milljarðar kr. Að gömlu bönkunum undanskildum var því hrein erlend staða þjóðarbúsins öllu skárri, eða neikvæð um 606 milljarða kr. Það jafngildir ríflega 42% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Sé þannig horft fram hjá þeim hluta erlendra eigna og skulda þjóðarbúsins sem rekja má til gömlu bankanna er erlend staða þjóðarbúsins sú hagstæðasta síðan á síðasta fjórðungi ársins 2004. Staðan, mæld með þessum hætti, er heldur ekki óþekkt í öðrum skuldsettum hagkerfum. Til að mynda var erlend staða sem hlutfall af landsframleiðslu í fyrra neikvæð á Spáni um 87%, á Nýja Sjálandi um 84% og í Ungverjalandi um 73% samkvæmt tölum frá AGS. Heildarskuldir þjóðarbúsins við útlönd, að gömlu bönkunum frátöldum, voru 3.322 milljarðar kr. um mitt ár samkvæmt tölum Seðlabankans. Það er há tala í samanburði við landsframleiðslu (u.þ.b. 230% m.v. áætlaða landsframleiðslu í ár) en þar verður að hafa í huga að óvenju miklar peningalegar eignir standa á móti. Má þar nefna erlendar eignir lífeyrissjóðanna, sem voru 497 milljarðar kr. um mitt ár, svo og gjaldeyrisforða Seðlabankans, en hann var 384 milljarðar kr. á sama tíma. Þá þarf að taka tillit til þess að í ofangreindum tölum eru meðtaldar eignir og skuldir stórra eignarhaldsfélaga í greiðslustöðvun og/eða fjárhagslegri endurskipulagningu, þar sem líkur eru á að hluti skulda gagnvart erlendum kröfuhöfum verði afskrifaður á næstu misserum.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira