Líklegt að ríkið þurfi frekara lánsfé á árinu 28. ágúst 2009 12:55
Tölur um lánsfjárþörf ríkissjóðs á fyrstu sjö mánuðum ársins sem birtar voru í gær benda til þess að hugsanlega þurfi ríkissjóður að afla sér meira lánsfjár á árinu en áætlanir ríkisins gera nú ráð fyrir. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en greiningin reiknar með því að engin ákvörðun um frekari útgáfu verði tekin fyrr en á síðasta ársfjórðungi.Mikil lánsfjárþörf ríkissjóðs á fyrstu mánuðum ársins Á fyrstu sjö mánuðum ársins var hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs 81 milljarður króna samkvæmt tölum sem fjármálaráðuneytið birti í gær. Tekjustofnar ríkisins hafa dregist hratt saman í kreppunni og kostnaður aukist. Má reikna með því að tekjuafkoma ríkissjóðs verði verri og lánsfjárþörf meiri eftir því sem árið líður og kreppan grefur sig dýpra. Í þessu ljósi má reikna með því að lánsfjárþörf ríkissjóðs í ár verði meiri en þeir 145 milljarðar sem áætlað var í upphafi árs. Ekki meira boðið út fyrr en á fjórða ársfjórðungi Reikna má með að með fjáraukalagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem væntanlegt er þegar þing kemur saman í upphafi október, muni sjást skýrari línur um hvort ríkið þurfi að afla sér lánsfjár á þessu ári umfram það sem þegar hefur verið gert. Ólíklegt er að neinar ákvarðanir um frekari lántökur ríkissjóðs á árinu verði teknar fyrr en þá þó svo að markaðsaðstæður séu á margan hátt ákjósanlegar fyrir útgáfu ríkisskuldabréfa um þessar mundir. Að mati Greiningar Íslandsbanka er líklegt að Lánasýslan muni afla þessa aukna lánsfjár á síðasta ársfjórðungi ef til þess þarf að koma og útgáfan á þriðja ársfjórðungi verði ekki meiri en orðin er. Viðbótin verður að þeirra mati lítil, eða innan við 30 milljarðar króna.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira