Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs hækkar um 12,2% milli ára

Frá júlí 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,2% og verðvísitala sjávarafurða um 27,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 15% en matvælaverð hefur hækkað um 13,6%. Hagstofan greinir frá þessu í dag.

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2009 hækkaði um 3,5% frá júní 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 1,4% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju hækkaði um 7,6%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,5% frá júní og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,4%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 4,4%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×