Leigumarkaðurinn heldur áfram að vaxa 12. nóvember 2009 11:24
Alls voru þinglýstir 861 leigusamningar nú í októbermánuði sem eru 20% fleiri samningar en gerðir voru á sama mánuði í fyrra. Þessi aukning er í takt við þá þróun sem hefur verið á árinu og lýsir hún aukinni sókn í leiguhúsnæði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að á fyrstu tíu mánuðum ársins höfðu alls 9.194 leigusamningum með íbúðarhúsnæði verið þinglýst samanborið við 6.084 á sama tímabili fyrir ári. Þetta jafngildir 51% aukningu á milli ára. Það er Fasteignaskrá Íslands sem tekur saman þessi gögn og birti í gær. Í ár hafa mun fleiri leigusamningum verið þinglýst með húsnæði en kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu og ljóst er að minna er um kaup og sölu íbúða en á móti hefur leigumarkaðurinn stækkað. Þannig var þinglýst 1.621 kaupsamningi með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á fyrstu tíu mánuðum þessa árs samanborið 5.992 leigusamninga. Jafnframt hefur verulega dregið úr fjölda skráðra íbúða sem sýnir að minna er um nýbyggingar. Í því efnahagsumhverfi sem heimilin búa við um þessar mundir, þar sem atvinnuleysi er vaxandi, kaupmáttur launa að dragast saman og húsnæðisverð að lækka kemur ekki á óvart að fleiri taka þann kost að leigja fremur en að láta fé sitt undir í íbúðarkaup. Fækkun á skráðum íbúðum, minni velta á fasteignamarkaði og aukin sókn í leiguhúsnæði skýrist því án efa af efnahagsástandinu. Hér má jafnframt taka það með í reikninginn að stór hluti þeirra erlendu aðila sem hingað streymdu í uppsveiflunni hefur horfið af landi brott en þeir voru umfangsmiklir á leigumarkaðnum fyrir bankahrunið.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira