Hin mædda miðja Páll Baldvin Baldvinsson skrifar 26. nóvember 2009 06:00 Heldri herramönnum sem hættir eru í pólitíkinni og lifa á vænum eftirlaunum er tíðrætt þessi dægrin um brúarsmíð í pólitísku lífi landsmanna. Brúin sú er vitaskuld með annan enda í landi þeirra sem misstu völdin í lýðræðislegum kosningum fyrir fáum mánuðum. Eins og það sé sami skikinn undir Framsókn og Sjálfstæðisflokknum, en þaðan liggur brúin: hinn endinn á brúnni er umluktur óveðursskýjum, enda vandséð að hinir hugprúðu brúarsmiðir andans viti vel hver á að annast brúarsporðinn á hinum bakkanum. Brúarsmíðin byggist á gömlu hugtaki hægri og vinstri og ákallið hljómar til hinnar svokölluðu miðjuhreyfingar í íslenskum stjórnmálum. Miðjan í pólitísku lífi á Íslandi byggðist lengi vel á hentistefnusiðum íslenskra smáflokka eða flokksbrota, þeirra hreyfinga sem voru svo lausar í hugsjónarásinni að þær voru tilbúnar að láta undan í flestum efnum, gefa sig á vald hinum stærri hreyfingum og tryggja þeim meirihluta á þingi. Lengi gegndi Alþýðuflokkurinn þessu hlutverki en svo tók Framsókn við, annar flokkurinn er kompa í skúffu eldri krata, hinn flokkurinn hefur gengið í gegnum endurnýjun á mannskap eftir að fyrri áhöfn sat lengi á valdastólum í skjóli sjálfstæðismanna. Og nú gera menn sér vonir um að þessir flokkar geti aftur fengið stjórnartaumana: Nú get ég, segir hin unga kynslóð reynslulítilla flokksmanna sem röðuðu sér á listana í vor. Víst má deila um það lengi og mikið hvort núverandi ríkisstjórn sé öll að aðhafast hið rétta í hinni erfiðu stöðu íslenskra stjórnmála, hún kann að vera sundruð og ósamstíga, hún kann að vera að gera allt vitlaust, en þótt þeir sitji flötum beinum í rústunum nýir og eldri forystumenn Framsóknar og íhaldsins og fægi látlaust allt grjót sem hönd á festir í þeirri von að þar séu lausnar- eða óskasteinar sem færi þeim völdin á ný, blasir sú staðreynd við að starfandi meirihluti býr við bærilegan þingstyrk í flestum málum. Það væri pólitískt óráð þeirra flokka að gefast upp á sínu erfiða verkefni. Því ekki að feisa það? Vilji menn byggja brýr, má reyna það á málefnalegum grundvelli - til að byrja með. Fátt í málflutningi stjórnarandstöðu bendir til að þar sé nokkur vilji til málamiðlana. Þvert á móti standa menn daglangt og brjóta öll borð sem liggja í átt til samstöðu með hertum munni, æsilegum augum og handaslætti. Og meðan þannig fer fram í þingsölum er engin von til að þjóðin, kjósendur, sjái brýr byggðar milli manna og flokka. Miðjuna rak burt úr íslenskum stjórnmálum fyrir löngu og vilji menn finna einhverja sökudólga er hollast að leita fyrst í eigin ranni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Páll Baldvin Baldvinsson Mest lesið Hörmulegur atburður í flugstöð Leifs Eiríkssonar Jón Pétursson Skoðun Forstjórinn stígur fram Örn Pálsson Skoðun Lífsgæði íbúa Mosfellsbæjar skert Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir Skoðun Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Tilvera okkar er undarlegt ferðalag Hópur meðlima No Borders Skoðun Brimrót og veðragnýr í alþjóðamálum Árni Þór Sigurðsson Skoðun Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir Unnur Helga Óttarsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hinn óseðjandi Eiríkur Ólafsson Skoðun
Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir Skoðun
Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun
Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun
Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir Skoðun
Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun
Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun