Þrjátíu skattsvikamál til skattrannsóknarstjóra Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 24. maí 2009 18:30
Ríkisskattstjóri mun á næstu dögum senda um þrjátíu mál til skattrannsóknarstjóra vegna notkunar á erlendum kreditkortum hér á landi. Grunur leikur á að um refsiverð brot sé að ræða en áberandi menn í viðskiptalífinu eru meðal þeirra sem notuðu kreditkortin. Ríkiskattstjóri hefur undanfarna mánuði skoðað notkun á kortum sem gefin hafa verið út erlendis og skuldfærð þar en notuð til úttektar hér á landi. Þannig hefur fólk getað komist hjá því að greiða skatt af tekjum sínum en dæmi eru um að einstök kort hafi verið notuð fyrir allt að 40 milljónir á einu ári. Heimild til að nálgast upplýsingar um hreyfingar á kortunum fékkst síðasta haust og hefur skoðun ríkisskattstjóra verið viðamikil. Ríkisskattstjóri krafðist upplýsinga frá eigendum verslana hvaða einstaklingar voru á bak við greiðslukort sem notuð voru í viðskiptum og fékk þannig upplýsingar um hverjir eru eigendur kortanna. Um 60 greiðslukort hafa verið í skoðun en í sumum tilvikum eiga sömu aðilar fleiri en eitt kort. Ríkisskattstjóri sendi viðkomandi einstaklingum bréf þar sem óskað var eftir því að þeir gerðu grein fyrir erlendum tekjum og eignum. Heimildir fréttastofu herma að þeirra á meðal séu aðilar sem hafa verið umsvifamiklir í viðskiptalífinu og teljist til hinna svokölluðu útrásarvíkinga. Þá voru einnig tekjulágir einstaklingar líkt og öryrkjar meðal þeirra sem áttu kortin. Viðræður hafa verið í gangi milli skattayfirvalda um hversu mörg mál flytjast yfir til skattrannsóknarstjóra. Skúli Eggert Þórðarson, ríkiskattstjóri, staðfesti í samtali við fréttastofu að meðferð málsins sé nú lokið hjá ríkisskattstjóra og að um helmingur málanna, eða um 30 muni verða vísað til skattrannsóknarstjóra. Þau mál sem eftir séu verði lokið með öðrum hætti, þ.e. með endurákvörðun opinberra gjalda. Þá verða sum mál felld niður og önnur munu verða til frekari athugunar þó þannig að þeim verði ekki vísað til skattrannsóknarstjóra. Grunur leikur á að um refsiverð brot sé að ræða í þeim málum sem flytjast yfir og er reiknað með að þau endi með refsimeðferð. Skattrannsóknarstjóri mun rannsaka málin en þau geta endað með sekt eða kæru til ríkislögreglustjóra.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira