Spáir 2,0 prósentustiga stýrivaxtalækkun 26. maí 2009 12:03
Greining Íslandsbanka væntir þess að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 2,0 prósentustig á vaxtaákvörðunardegi bankans 4. júní næstkomandi. Fara vextir bankans þá úr 13,0% niður í 11,0%. Greiningin segir í Morgunkorni sínu að slík lækkun verður að teljast umtalsverð samkvæmt skilgreiningu Seðlabankans þó svo að ýmsir kunni að telja hana hóflega við núverandi aðstæður í efnahagslífinu. Óvissan er í þá átt að lækkunin gæti orðið minni. Líklegt er að nefndin fylgi eftir fyrri yfirlýsingu sinni um að með því að lýsa yfir að á næstunni verði vaxtalækkanirnar hægari. Ýmislegt hefur þó gerst að mati greiningarinnar sem kanna að draga úr vilja peningastefnunefndarinnar til að lækka stýrivexti. Byggði yfirlýsing nefndarinnar um umtalsverða lækkun núna í júní t.d. á forsendum um stöðugleika krónunnar enda er það skammtímamarkmið peningastefnu bankans. Frá fundi nefndarinnar í maí hefur gengi krónunnar hins vegar lækkað um 4,8% sem er umtalsvert. Yfirlýsingin byggði einnig á þeirri forsendu að aðhald í ríkisfjármálum yrði aukið núna í sumar með verulegum niðurskurði útgjalda, hækkun skatta og öðrum tekjuaukandi aðgerðum. Áætlun ríkisstjórnarinnar um þetta hefur enn ekki litið dagsins ljós. Hraðari verðhjöðnun er reiknað var með var ein af ástæðum umtalsverðrar lækkunar nefndarinnar á stýrivöxtum bankans í maí. Nú hefur verðbólgan hins vegar lækkað minna en vænst var en samkvæmt upplýsingum sem Hagstofan birti í morgun fór verðbólgan úr því að vera 11,9% í apríl niður í 11,6% í maí. Ýmislegt gæti hins vegar orðið til þess að nefndin haldi sínu striki og lækki vexti umtalsvert. Vísbendingar eru um að hratt dragi úr innlendri eftirspurn og er slakinn á vinnumarkaði vaxandi. Framleiðsluslakinn er því að aukast og eini verðbólguþrýstingurinn sem líklegur er á næstunni kemur frá frekari gengislækkun krónunnar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira