Portfarma gerir samning upp á hundruð milljóna 15. október 2009 12:25
Íslenska samheitalyfjafyrirtækið Portfarma hefur skrifað undir samning við Grindeks, eitt stærsta lyfjasölufyrirtæki í Eystrasaltsríkjunum, um dreifingu og sölu á lyfjum fyrirtækisins í nær öll apótek í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Verðmæti samningsins hleypur á hundruðum milljóna íslenskra króna á ári. Í tilkynningu segir að einnig sé unnið að því í samvinnu við Grindeks að koma á dreifingu til fleiri ríkja þar í grennd. Samningurinn þýðir miklar gjaldeyristekjur fyrir Portfarma og um leið íslensku þjóðina. Portfarma var stofnað árið 2005 og er nú þegar komið með markaðsleyfi fyrir á þriðja tug lyfja á Íslandi. Fyrirtækið gerir ráð fyrir því að vera komið með rúmlega 100 lyf á markað hérlendis innan skamms. Hjá fyrirtækinu starfa 7 manns, auk fjölda verktaka en framleiðslan fer fram í 7 löndum. Ekki virðist sem allir geri sér grein fyrir því að samheitalyf eru fullkomlega sambærileg við frumlyf hvað varðar gæði og virkni efnanna. „Heilbrigðisstarfsmenn eru meðvitaðir um þetta en ekki er víst að almenningur sé það. Sem betur fer er þó mikil vakning um notkun samheitalyfja," segir Olgeir Olgeirsson, forstjóri Portfarma í viðtali við Lyfjatíðindi. „Tilkoma Portfarma á íslenskan markað hefur stuðlað að lægri lyfjaskostnaði. Aukin samkeppni á milli lyfjaframleiðenda og meira framboð af ódýrari samheitalyfjum hefur lækkað lyfjakostnað og fastlega má gera ráð fyrir að kostnaður sjúklinga sem og Sjúkratryggingasjóðs væri mun hærri ef aukið framboð samheitalyfja frá aðilum eins og Portfarma hefðu ekki komið til. Samfélagslegur ávinningur er því mikill, en í öllum tilfellum hefur það gerst að þar sem Portfarma hefur sett lyf markað hefur verð á samskeppnislyfjum lækkað, yfirleitt um tugi prósenta," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira