Fjórðungur fyrirtækja ætlar að fækka starfsmönnum 15. október 2009 13:02
Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim. Af þeim sem hyggjast fjölga starfsmönnum ætla tveir þriðju að fjölga um innan við fimm starfsmenn. Þetta kemur fram á vefsíðu samtakanna. Þar segir að þó finnst dæmi um áformaða fjölgun um yfir 50 starfsmenn. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum ætla 70% að fækka um innan við fimm starfsmenn en fimmtungur þeirra hyggjast fækka um meira en 10, en það teljast hópuppsagnir. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. Könnunin var rafræn og gerð meðal aðildarfyrirtækja SA dagana 7.-13. október 2009 en framkvæmd hennar var í höndum Outcome hugbúnaðar ehf. Markmiðið með könnuninni var að fá skýrari mynd af horfunum framundan í íslensku atvinnulífi. Rúmur fjórðungur fyrirtækjanna, 27%, hafa brugðið á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf á árinu 2009 til þess að forðast uppsagnir. Í sambærilegri könnun í febrúar síðastliðnum sögðust 18% fyrirtækjanna hafa gert það, þannig að notkun þessa úrræðis virðist hafa farið vaxandi. Fjórðungur, 25%, fyrirtækjanna hefur gripið til launalækkana á árinu til þess að tryggja áframhaldandi rekstur, en til samanburðar höfðu 18% gert það í könnuninni í febrúar. Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingastarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Áætlað er að í þessum atvinnugreinum starfi um 87.000 manns um þessar mundir. Áformuð fjölgun starfsmanna hjá þeim fyrirtækjum í könnuninni sem hyggjast fjölga á næstu sex mánuðum er 1,2% af heildar starfsmannafjölda en áformuð fækkun nemur 3,5%. Nettófækkun starfsmanna verður því 2,3% af starfsmannafjölda, eða sem samsvarar 2.000 manns, í þessum atvinnugreinum á næstu sex mánuðum. Launagreiðslur sem falla brott af þeim sökum nema um 10 milljörðum króna á ársgrundvelli.
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Guðrún til Landsbankans Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Sjá meira