Yfirtaka á Exista í uppnámi 16. apríl 2009 18:30
Stjórn Kaupþings mun á næstu dögum ákveða hvort að yfirtökutilboði Bakkabræðra á Exista verði tekið. Tilboðið gerir ráð fyrir að hluthafar fái 0,02 krónur fyrir hvern hlut. Rán segir hluthafi. Í lok síðasta árs skráði BBR, félag í eigu Lýðs og Ágústs Guðmundssona sig fyrir nýju hlutafé í Exista sem nam 50 milljörðum hluta. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings en auk þess á félagið VÍS, Lífís, Lýsingu og Skipti sem er móðurfélag Símans. BBR hefur nú sent yfirtökutilboð til hlutahafa í Exista. Með undanþágu frá Fjármálaeftirlitinu var ákveðið að kaupverðið sé 0,02 krónur á hvern hlut. Kaupþing á 10,4% í félaginu en stjórn bankans hafnaði samskonar yfirtökutilboði í desember. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, segir að ákvörðun um hvort að gengið verði að tilboðinu verði tekin á allra næstu dögum.Fréttastofa ræddi í dag við nokkra hluthafa sem eru mjög ósáttir við yfirtökutilboðið. Einn þeirra fjárfesti fyrir rúma eina milljón í félaginu yfir nokkurra mánaða tímabil. Honum eru boðnar 36.000 krónur fyrir sinn hlut. Hann segir þetta rán og að hann ætli ekki gefa hlutinn sinn. Hann vilji frekar tapa honum.Ekki er þó víst að af yfirtökunni verði þar sem fjárhagsleg endurskipulagning á Exista er nú í gangi. Um 20 erlendir bankar, lífeyrissjóðir og íslenskar fjármálastofnanir sem eiga kröfur á félagið koma að þeirri vinnu. Ekki liggur fyrir hvenær þeirri henni verði lokið.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira