Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður með útboð á íbúðabréfum

Myndin er af miðbæ Ísafjarðar. Mynd/ BB.
Myndin er af miðbæ Ísafjarðar. Mynd/ BB.

Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 3 milljarðar króna að nafnverði.

Í tilkynningu segir að Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Íbúðalánasjóðs við Íslandsbanka hf., Nýja Kaupþing hf., NBI hf., og MP Fjárfestingarbanka hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð.

Útboðið fer fram í dag, fimmtudag.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×