SA: Úrskurður ráðherra stenst ekki lög 30. september 2009 08:58 „
Ekkert er fjær lagi. Þvert á móti er úrskurður ráðherra ekki samkvæmt lögum og virðist vart geta haft neina þýðingu því Skipulagsstofnun hefur þegar gefið út álit sitt um mat á umhverfisáhrifum suðvesturlínu." Þetta kemur fram í áliti frá Samtökum atvinnulífsins (SA) sem birt er á heimasíðu samtakanna í dag. Þar segir að í fréttum í gær var haft eftir umhverfisráðherra að einungis væri verið að framfylgja lögum og viðhafa góða stjórnsýslu með því að fela Skipulagsstofnun að úrskurða að nýju um hvort fram skuli fara sameiginlegt umhverfismat á suðvesturlínu og tengdum virkjunum og öðrum framkvæmdum. Síðan segir: „Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er kærufrestur einn mánuður vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum línulagnarinnar og tengdum framkvæmdum. Úrskurður stofnunarinnar gekk 25. mars og kærufrestur því til 25. apríl. Samkvæmt lögunum hefur umhverfisráðherra síðan tvo mánuði til að kveða upp úr um gildi kærunnar. Þannig átti úrskurður ráðuneytisins lögum samkvæmt að liggja fyrir í lok júní. Það gerðist ekki. Umhverfisráðherra tók rúmum þremur mánuðum lengri tíma til þess að kveða upp úrskurð en áskilið er í lögum um mat á umhverfisáhrifum (nr. 106/2000). Þann 17. september sl. gaf Skipulagsstofnun út álit sitt á mati á umhverfisáhrifum suðvesturlínu. Þar kemur fram að matsskýrsla framkvæmdaaðila uppfylli skilyrði laga en að rétt sé leyfisveitendum að setja tiltekin skilyrði fyrir framkvæmdum til þess að draga úr meintum neikvæðum áhrifum þeirra. Þegar Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sitt er ekkert í vegi fyrir því að hefja framkvæmdir að fengnum leyfum sveitarfélaga og annara sem leyfi kunna að þurfa að veita. Álit Skipulagsstofnunar er samkvæmt lögum endanlegt og engar heimildir til þess að endurskoða álitið að því gefnu að framkvæmdir hefjist innan 10 ára frá því álitið kom fram. Þannig virðist blasa við að úrskurður umhverfisráðherra sé dæmi um stjórnsýslu sem ekki virðir tímamörk sem bundin eru í lögum. Ekkert í lögunum heimilar Skipulagsstofnun að taka upp álit sitt á mati á umhverfisáhrifum og sjálfsagt virðist að framkvæmdaaðilar haldi sínu striki óháð þessum úrskurði ráðherra sem er til þess fallinn að tefja, skapa óvissu og um leið spilla fyrir endurreisn íslensks efnahagslífs. Það er óviðunandi að fyrirtæki sem undirbúa framkvæmdir, og fara í einu og öllu að lögum, skuli verða fyrir því að ráðherra skuli breyta skilyrðum eftir á og tefla þannig í tvísýnu öllum undirbúningi framkvæmda og valda með ákvörðunum sínum ómældum kostnaði."
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira