Laun sérfræðinga hækka en laun ófaglærðra lækka 30. september 2009 15:42
Meðallaun sérfræðinga hækkuðu um 3,4% frá september 2008 fram í febrúar 2009. Á sama tímabili lækkuðu meðallaun ófaglærðs starfsfólks um 4,7%, að því er fram kemur í Launagreiningu ParX sem er dótturfélag Nýherja. Í frétt frá ParX um málið segir að þegar laun sérfræðinga eru skoðuð sérstaklega kemur í ljós að meðallaun lögfræðinga hafa hækkað um 7,2% á meðan laun sérfræðinga í markaðsmálum hafa lækkað um 8,1%. Þá hækkuðu meðallaun fjármálastjóra um 5,6%. Meðal ófaglærðra hefur launaþróun orðið með eftirfarandi hætti frá september 2008 fram í febrúar 2009: Meðallaun bílstjóra hækkuðu um 3%, laun starfsfólks í ræstingum lækkuðu um 0,7%, laun starfsfólks í almennum sölu- og afgreiðslustörfum hækkuðu um 3,6% og laun starfsfólks í sérhæfðum sölu- og afgreiðslustörfum lækkuðu um 3,8%. Í heild hækkuðu meðallaun allra starfshópa í Launagreiningu ParX um 1% frá því í september 2008 fram í febrúar 2009. Til samanburðar hækkuðu laun sömu hópa um 30% á almennum vinnumarkaði á árunum 2005-2008, samkvæmt gögnum frá ParX. „Það má færa rök fyrir því að ný viðmið hafi skapast við launaákvarðanir á almennum vinnumarkaði miðað við niðurstöður ParX. Gögnin sýna að laun hafa staðið í stað eða lækkað hjá mörgum starfshópum," segir Brynja Bragadóttir fagstjóri rannsókna- og greiningasviðs hjá ParX viðskiptaráðgjöf. Hún segir að þegar gera eigi breytingar á launum starfsfólks sé mikilvægt að stjórnendur hafi yfirsýn yfir laun á almennum markaði og að þeir geti borið laun einstakra starfshópa saman við laun annarra launþega í sambærilegum störfum innan sambærilegra fyrirtækja, t.d. fyrirtækja af svipaðri stærð og í sömu starfsgrein. Launagreiningin, sem hefur verið framkvæmd árlega frá 1979, byggir á upplýsingum úr launakerfum íslenskra fyrirtækja. Könnunin er ekki viðhorfskönnun starfsmanna á almennum vinnumarkaði heldur er stuðst við gögn beint úr launakerfum og eru þau m.a. greind eftir starfsheitum, starfsgreinum og stærð fyrirtækja. Launagreining ParX gefur því raunhæfa mynd af stöðu og þróun launa á íslenskum vinnumarkaði.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira