Bandarískir verðbréfsalar meðal hæstu skattgreiðenda í Reykjavík 30. október 2009 11:11
Nafn Fluke Finance Co ehf. vekur athygli á lista Skattstjórans í Reykjavík yfir 10 stærstu greiðendur opinberra gjalda lögaðila í borginni. Fluke er verðbréfamiðlun í eigu bandarískra manna og er dótturfélag Fluke International Corp. Opinber gjöld Fluke nema tæpum 530 milljónum kr. og er þar um fjármagnstekjuskatt að ræða. Samkvæmt opinberum upplýsingum var Fluke Finance stofnað í árslok árið 2006 og raunar er það síðasti ársreikningur sem til er um starfsemi þess þar sem ársreikningum fyrir 2007 og 2008 hefur ekki verið skilað inn. Hlutafé við stofnun þess nam 500.000 kr. Félagið var stofnað á vegum Deloitte í nóvember 2006 og hét þá Rauðagil ehf. Mánuði síðar var það komið í eigu Bandaríkjamannanna og nafni þess breytt í Fluke Finance. Í maí árið 2007 er hlutafé Fluke síðan aukið í 14,85 milljónir evra, rúmlega 2,7 milljarða kr. á núvirði og á þeim tíma er Fluke International orðið eini eigandi Fluke Finance. Áður höfðu þeir Frank Talbot McFaden og James Howard Ditkoff skipað stjórn félagsins. Samkvæmt upplýsingum úr samþykktum fyrir Fluke Finance er tilgangur félagsins kaup, sala og eignarhald á verðbréfum, kaup, sala og rekstur á fasteignum og lausafé ásamt lánastarfsemi sem tengist rekstrinum. Miðað við að hin opinberu gjöld Fluke Finance séu fjármagnstekjuskattur má áætla að hagnaður félagsins af fjármagnstekjum hafi numið vel yfir 5 milljörðum kr.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira