Afleiður eru þriðjungur af eignum Kaupþings 30. október 2009 11:52
Heildareignir Kaupþings banka, að teknu tilliti til veðsettra eigna og forgangskrafna, voru metnar á 775 milljarða kr. þann 30/6 2009. Af þeim eignum voru afleiðusamningar metnir á 246 milljarða kr. eða um þriðjungur en á móti þeim hafa mótaðilar lagt að veði reiðufé og aðrar tryggingar að fjárhæð 143 milljarðar kr. Samkvæmt upplýsingum úr uppfærðri skýrslu skilanefndar Kaupþings til kröfuhafa er eitt af fjölmörgum verkefnum sem skilanefndin hefur fengist við undanfarið ár er að gera upp afleiðusamninga. Til að aðstoða við það verkefni hefur nefndin ráðið sérfræðinga frá Alvarez and Marsal ("A&M") og lögfræðiráðgjafa frá Olswang. Markmiðið er að endurheimta sem allra mest í þágu kröfuhafa. Vinnan, sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði, gengur út á að yfirfara afleiðusafnið og í kjölfarið að tryggja að hámarksheimtur náist á safninu. Erlendu ráðgjafarnir munu styrkja það teymi sérfræðinga hjá skilanefndinni sem hefur unnið að verkefninu hingað til. Verkefnum er forgangsraðað eftir stærð samninga. Samningsaðilar bankans eru 350 talsins, bæði innlendir og erlendir aðilar, og um er að ræða 2.500 einstaka samninga. Dæmi um afleiður eru framvirkir samningar, valréttur (kaup- og söluréttur) og vaxtaskiptasamningar. Til að útskýra afleiðu á einfaldan hátt má nefna einfalt dæmi sem þetta: Þú kaupir 100 tonn af áli með framvirkum samningi til þriggja mánaða.. Samkvæmt samningum skuldbindur þú þig til að kaupa framangreint magn á 2000 dollara tonnið eftir þrjá mánuði. Ef álverðið er 2000 dollara eftir þrjá mánuði þegar samningurinn er gerður upp ertu á sléttu. Ef verðið er 1.900 dollarar tapar þú 100 dollurum á tonnið. Ef það er 2.100 dollarar græðir þú 100 dollara á tonnið.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sjá meira