Góður gangur í framkvæmdum út á Granda 30. október 2009 09:50
Nú standa yfir framkvæmdir á vegum Faxaflóahafna sf við ýmis verkefni við grjótröðun og frágang hafnarkanta á Slippasvæðinu, frágangur á undirstöðum fyrir göngubrautir við sjó og bygging á útivistar- og setpöllum við Grandagarð 8. Fjallað er um málið á vefsíðu Faxaflóahafna. Þar segir að síðastliðið sumar óskuðu Faxaflóahafnir sf eftir tilboðum í þetta verk og í framhaldi af því var gengið til samninga við lægstbjóðanda, Ísar ehf um verkið, en tilboð hans var 69,7 % af kostnaðaráætlun. Höfnin lagði aftur á móti til verks allt timbur sem er harðviður. Verktakinn hóf síðan verkið síðla sumars og þessa dagana eru ýmsir verkáfangar að taka á sig mynd. Pallasmíði við Grandagarð 8 er að ljúka, grjótröðun á landköntum í gangi og samhliða lokið niðurrekstri á undirstöðustaurum fyrir göngubrautir sem byggðar verða þarna síðar. Þessum áfanga framkvæmda líkur síðan í desember. Við verklok þessara framkvæmda má segja að nokkrar áhugaverðustu lóðir til úthlutunar og uppbyggingar hér í Reykjavík séu nú að verða tilbúnar. Unnið hefur verið að framkvæmdum við frágang á þessum lóðum nokkuð jafnt og þétt á árunum 2007- 09 og lokið er efnisskiptum, landfyllingum, landmótun og gatnagerð. Við upphaf framkvæmda var ákveðið að áfangaskipta framkvæmdum á Slippasvæðinu og fyrst yrði vesturhluti svæðis undirbúinn fyrir uppbyggingu á nýrri byggð, en ekki hreyft við austurhluta svæðis og upptökumannvirkjum fyrr en síðar.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira