Loks búið að ákveða aðalmeðferð yfir sjóðsstjóra og miðlara 9. nóvember 2009 15:40 Daníel Þórðarson sjóðsstjóri.
Fyrirtaka fór fram í máli Daníels Þórðarsonar og Stefnis Inga Agnarssonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir hafa verið ákærðir fyrir að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista alls sex sinnum frá janúar til febrúar á síðasta ári. Um var að ræða fimm milljón króna kauptilboð í hvert skipti sem voru lögð fram í Kauphöll Íslands á mánaðartímabili. Tilboðið hafði áhrif á dagslokaverðið og þar með bjuggu þeir til falska eftirspurn auk þess sem verð bréfanna var misvísandi, eins og það er orðað í ákæruskjali. Málið hefur verið að velkjast í kerfinu í marga mánuðina en í dag var úrskurðað um afhendingu gagna. Síðan var ákveðið að aðalmeðferð málsins ætti að fara fram nú á fimmtudaginn. Vísir greindi frá því að aðalmeðferðina ætti að fara fram í lok október. Þá var henni frestað. Dómsmálið var upprunalega þingfest í mars síðastliðnum eða fyrir tæpum níu mánuðum. Síðan þá hafa mennirnir meðal annars skipt um verjendur. Þá var Stefnir erlendis í vor og því þurfti einnig að fresta málinul. Daníel Þórðarson var sjóðsstjóri hjá Kaupþingi en Stefnir Ingi var skuldabréfamiðlari hjá sama banka. Málið er eitt fyrsta sakamálið vegna brota í aðdraganda bankahrunsins sem hefur ratað fyrir héraðsdóm. Töluverð umræða hefur verið um að í undanfara bankahrunsins, hafi verðbréfamiðlarar reynt að halda gengi bréfa í stóru bönkunum þremur og öðrum félögum uppi, með svipuðum aðferðum og hér um ræðir. Verði Daníel og Stefnir sakfelldir þá geta þeir búist við fangelsi, allt að sex árum samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira