Íbúar Garðabæjar taka þátt í fjárhagsáætlun bæjarins 9. nóvember 2009 11:53
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar boðar til fundar með íbúum bæjarins miðvikudaginn 11. nóvember nk. Á fundinum fá allir Garðbæingar tækifæri til að hafa áhrif á gerð fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2010. Þetta er í fyrsta sinn sem boðað er til almenns íbúafundar í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun. Í tilkynningu segir að á fundinum vill bæjarstjóri upplýsa íbúa um fjárhagslega stöðu bæjarins og leita eftir tillögum þeirra um hvernig rétt sé að bregðast við fyrirsjáanlegum samdrætti í tekjum á næsta ári. „Sveitarfélög horfa fram á 5-10% lækkun tekna á næsta ári. Við þessari tekjulækkun verður að bregðast í fjárhagsáætlun. Mér finnst mikilvægt að bæjarbúar fái tækifæri til að taka þátt í þeirri umræðu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri," segir Gunnar. Hann segist sannfærður um að bæjarbúar búi yfir mörgum góðum hugmyndum um hvernig hægt sé að hagræða í rekstri bæjarins. Hann vilji því leita til þeirra; bæði til að heyra hugmyndir til sparnaðar en einnig til að heyra hvar íbúar vilja alls ekki að sparnaðurinn komi fram. Á fundinum kynna bæjarstjóri, endurskoðandi bæjarins frá KPMG og fjármálastjóri Garðabæjar starfsemi bæjarins og fjárhagslega stöðu. Reiknað er með að kynningarnar taki í allt um hálftíma. Að kynningum loknum verður unnið í minni hópum þar sem fundargestum gefst tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hópstjóri leiðir umræðuna í hverjum hóp og allir fá tækifæri til að koma sínum tillögum að. Allar hugmyndirnar sem koma fram verða hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar. Að fundinum loknum verður jafnframt opnað fyrir ábendingaform á vef Garðabæjar þar sem bæjarbúar geta haldið áfram að senda inn tillögur til hagræðingar í rekstrinum. Niðurstöður umræðna verða einnig birtar á vefnum.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira