Opinber rannsókn á Kaupþingi hafin í Bretlandi 16. desember 2009 13:59
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, hefur sent frá sér tilkynningu um að opinber rannsókn sé hafin á starfsemi Kaupþings í Bretlandi. Rannsóknin muni m.a. beinast að gjörðum Kaupþings til að fá Breta til að leggja sparifé sitt inn á Edge-reikninga bankans í Bretlandi.„Rannsóknin á að leiða í ljós hvort misvísandi eða falskar upplýsingar hafi komið frá bankanum til breskra fjárfesta," segir í tilkynningunni. „Annar hluti rannsóknarinnar beinist að því hvort ákvarðanir hafi verið teknar sem leiddu til þess að umfangsmiklum verðmætum var skotið undan í bankanum vikurnar og dagana fyrir hrun hans."Talsmaður Serious Fraud Office segir í tilkynningunni að um flókna rannsókn verði að ræða þar sem fleiri en ein lögsaga komi við sögu. „Við höfum unnið náið með skrifstofu sérstaks saksóknara, á Íslandi, til að tryggja að rannsóknin verði eins nákvæm og umfangsmikil og hægt er," segir talsmaðurinn og bætir því við að samvinnan sé einnig til þess að koma í veg fyrir tvíverknaði í rannsókninni.Þá segir að Serious Fraud Office áætli að yfir 30.000 breskir einstaklingar, fyrirtæki og félög hafi fjárfest á Edge reikningum Kaupþings. Allir sem vilji geti komið upplýsingum til Serious Fraud Office og bent er á öruggann tölvupóst í því sambandi. Póstfangið er: https://www.surveymonkey.com/s/9LR8TWX
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira