Slakað á gjaldeyrishömlum 31. júlí 2009 04:30 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra. Unnið hefur verið að áætlun um afnám gjaldeyrishafta í ráðuneyti hans.
Áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna verður kynnt í dag. Unnið hefur verið að áætluninni í viðskiptaráðuneytinu en hún er liður í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Fram til þessa hafa ekki verið taldar forsendur til að slaka á höftunum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn [AGS] staðfesti í gær seinkun á endurskoðun efnahagsáætlunarinnar. Verður hún ekki framkvæmd fyrr en undir lok ágúst eða í byrjun september. Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fer í tveggja vikna sumarleyfi á föstudaginn í næstu viku. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu frá í gærkvöldi segir að AGS telji stjórnvöld hafa uppfyllt skilyrði endurskoðunar. Þrátt fyrir það hafi henni verið frestað. Sjóðurinn hafi staðreynt að fjármögnun áætlunarinnar með greiðslum frá utanaðkomandi aðilum, m.a. Norðurlöndunum, hafi ekki verið tryggð. Umsamin norræn lán séu mikilvægur hluti áætlunarinnar og verði aðgengi að þeim að vera að fullu tryggt áður en framkvæmdastjórnin telji sig geta gengið frá endurskoðuninni. Meðal þess sem kveðið er á um að eigi að vera lokið og stjórnvöld hafa framkvæmt er samþykkt áætlunar um ríkisfjármál til næstu ára, samningar um endurfjármögnun bankakerfisins og við skilanefndir bankanna og undirritun lánssamninga við Norðurlönd og samninga um Icesave. Norðurlöndin hafa ekki viljað reiða fram umsamin lán. Heimildir herma að ástæða þess sé að Icesave-samkomulagið bíði enn afgreiðslu Alþingis. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun AGS mjög bagalega. Lán frá sjóðnum og Norðurlöndunum verði að berast. Hann segir augljóst að ljúka verði Icesave-málinu sem fyrst; þingmenn verði að meta líkurnar á að betri samningar náist við Breta og Hollendinga en þeir sem liggja fyrir. „Menn verða að setja sig í spor þeirra [Breta og Hollendinga] og spyrja hvort þeir séu líklegir til að gera annan og betri samning við okkur. Hvaða ástæðu ættu þeir að hafa til þess? Menn þurfa að meta líkurnar á að við getum fengið betri samning og miða þær við það tjón sem hugsanlega hlýst af því að afgreiða ekki málið."
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira