Norræn ofurtölvusetur á Íslandi til skoðunar 3. júlí 2009 09:47
Þrjár norrænar stofnanir íhuga nú að koma á fót samnorrænum ofurtölvusetrum á Íslandi. Það er einkum hagstætt raforkuverð sem gerir Ísland að ákjósanlegum stað fyrir setrið að því er segir í grein um málið í Teknisk Ukeblad í Noregi. Stofnanir þær sem vilja koma þessum tölvusetrum á fót á Íslandi eru Sigma Uninett í Noregi, Swedish National Infrastructure for Computing (SNIC) og Dansk Center for Scientific Computing (DCSC). „Viðræður um málið hafa staðið um nokkurt skeið. Við erum ekki að tala um netþjónabú heldur stór ofurtölvusetur," segir Jacko Kostner hjá Sigma Uninett í samtali við Teknisk Ukeblad. „Við höfum ekki ákveðið neitt en málið mun skýrast í sumarlok." Sigma Uninett, svipað og SNIC og DCSC, er félag sem sér norska ríkinu fyrir tæknibúnaði til að framkvæma flókna vísindalega útreikninga. Ofurtölvusetur svipað því sem hugmyndir eru að setja upp á Íslandi eru til staðar í Danmörku. Noregi og Svíþjóð en rafmagnsreikningurinn við rekstur þeirra er alltof hár að mati þeirra sem reka þau. Í Danmörku er reikningurinn síðustu þrjú árin er orðinn jafnhár og það kostaði að byggja setrin á sínum tíma. Rene Belsö hjá DCSC segir að ofurtölvusetur þeirra noti alltof mikið af rafmagni og fyrir Danina snúist málið fyrst og fremst um að fá meiri vinnu út úr setrunum fyrir minni straum. Kílówattstundin í Danmörku er á 1,35 dkr. Hlutur Íslands í ofurtölvusetri sem sett yrði upp hérlendis myndi vera ókeypis rafmagn til rekstur þess. Það myndi spara Dönum einum 27 milljónir danskra kr. eða um 650 milljónir kr. Jacko Kostner segir að setrin sem þeir reka á fjórum stöðum í Noregi noti samanlagt eitt megawatt og sé rafmagnsreikningurinn fyrir þau 8-10 milljónir norskra kr. á ári eða um 160 til 200 milljónir kr. Norðmenn munu ákveða í haust hvort þeir setji upp ofurtölvusetur á Íslandi. Ef Ísland verður fyrir valinu mun bygging setursins hefjast í apríl á næsta ári og það verður komið í fulla notkun næsta sumar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira