Gunnar Sigurðsson stjórnarformaður Hamleys eftir uppstokkun 3. júlí 2009 08:27
Gunnar Sigurðsson fyrrum forstjóri Baugs í Bretlandi var kjörinn stjórnarformaður leikfangaverslunarkeðjunnar Hamleys eftir uppstokkun í stjórninni. Skilanefnd Landsbankans fer nú með 63,7% hlut í Hamleys en sá hlutur var áður í eigu Baugs. Í frétt um málið á vefsíðu RetailWeek segir að með uppstokkuninni hafi tveir af forstjórum Hamleys látið af störfum sem og um 20 starfsmenn á aðalskrifstofu keðjunnar. Guðjón Reynisson aðalforstjóri Hamleys vildi ekki tjá sig um ástæðu þess að Gunnar var ráðinn stjórnarformaður í samtali við RetailWeek en vefsíðan nefnir að það sé vel þekkt að þeir tveir séu vinir. Aðrir í stjórn Hamleys eftir uppstokkunina eru Sally Ingleson forstöðumaður áhættufjárfestinga hjá Landsbankanum, Pétur Halldórsson fyrrum forstjóri hjá Fons, sem áður átti 35% hlut í Hamleys og Alasdair Dunn fjármálastjóri keðjunnar. Talið er að skilanefnd Kaupþings fari nú með hlut Fons og er Hamleys því að nær öllu leyti í íslenskri eigu. Paul Currie, fyrrum aðalforstjóri Hamleys yfirgaf stjórnina í maí s.l. og mun ekki ráðið í stöðu hans. Innkaupastjórinn Diane Lee yfirgaf stjórnina um svipað leyti. Guðjón Reynisson segir að stjórn Hamleys sé nú komin í góðan gír. „Við erum á flugi, allt er á áætlun og fólk ætti ekki að hafa áhyggjur af Hamleys," segir Guðjón. Gunnar Sigurðsson er áfram í stjórn Iceland, House of Fraiser, Whistles og Aurum sem allt eru fyrrum félög sem Baugur átti hlut í.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira