Enn mikil svartsýni meðal neytenda til efnahagsmála 25. ágúst 2009 12:30 Væntingar hækkuðu aðeins á milli júní og júlí. Mynd/ Völundur.
Væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins hækkuðu aðeins á milli júní og júlí síðastliðins. Breytingin er óveruleg og svartsýnin enn allsráðandi hjá íslenskum neytendum. Væntingavísitala Capacent Gallup sem birt var í morgun stóð í 24,9 stigum í júlí og hækkaði um 4,0 stig frá fyrri mánuði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að vísitalan hafi verið að meðaltali 27 stig frá því í nóvember í fyrra eða frá hruni bankanna, og er mælingin í júlí því aðeins undir meðaltalinu þennan tíma. Íslenskir neytendur hafa verið afar svartsýnir á efnahags- og atvinnuástandið allan tíma frá hruni bankanna. Undanfarna 17 mánuði eða allt frá mars á síðasta ári hefur gildi vístölunnar verið undir 100 stigum sem þýðir að fleiri svarendur eru neikvæðir en jákvæðir. Mesta bjartsýni sem mælst hefur á þennan mælikvarða meðal neytenda hér á landi mældist í maí 2007 þegar vísitalan var 155 stig. Þá fór lítið fyrir svartsýni meðal neytenda. Nú er hinsvegar allt önnur staða uppi í efnahagsmálum þjóðarinnar, kaupmáttur lækkandi, atvinnuleysi mikið, verðbólgan há, húsnæðisverð lækkandi og skattahækkanir framundan. Það kemur því varla á óvart að nú skuli 89% aðspurðra hafa sagt núverandi efnahagsástand vera slæmt á meðan aðeins 0,4% aðspurðra sögðu það gott. Þá töldu 58% aðspurðra að efnahagsástandið yrði verra eftir 6 mánuði og einungis 13% að það yrði betra. Talsverð fylgni er á milli Væntingavísitölunnar og einkaneyslu. Þannig segir vísitalan ágætlega til um þær breytingar sem eru að eiga sér stað í neysluútgjöldum heimilanna, en einkaneysla er stærsti einstaki liður landsframleiðslunnar. Einkaneyslan hefur dregist hratt saman undanfarið og mældist samdrátturinn á milli fyrsta ársfjórðungs í ár og sama tíma í fyrra 22,1%, og 23,8% ef fjórði fjórðungur í fyrra er skoðaður.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira