Icesave eigandi sem á 10 milljónir inni gleymir kröfu 23. október 2009 08:25
Eigandi Icesave-reiknings í Bretlandi sem á 50.000 pund eða rúmlega 10 milljónir kr. hefur enn ekki gert kröfu um að fá innistæðu sína borgaða. Geri hann slíkt ekki fyrir mánaðarmótin er krafan töpuð. Greint er frá þessu í blaðinu Telegraph en eins og kunnugt er af fréttum eiga um 1.500 eigendur Icesave-reikninga í Bretlandi enn eftir að gera kröfur um að fá innistæður sínar endurgreiddar. Í flestum tilvika er um smáupphæðir að ræða. Bresk stjórnvöld tryggðu á sínum tíma allar innistæður á Icesave upp að 50.000 pundum og hafa allir af þeim tæplega 300.000 Bretum sem áttu fé á þessum reikningum fengið það endurgreitt, það er fyrir utan fyrrgreinda 1.500 sem ekki hafa enn gert kröfur um endurgreiðslur. Tryggingasjóður innistæðueigenda í Bretlandi hefur hingað til greitt út 3,9 milljarða punda til þessa hóps. Upphæðin í heild nemur 4,56 milljörðum punda en það sem á milli skilur, 660 milljón pund, var á föstum langtímareikningum og verða endurgreidd þegar tímatakmörkunum er náð.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira