Saksóknari: Baldur staðinn að ósannindum 17. desember 2009 09:12
Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara, sagði í málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag, vegna kröfu Baldurs Guðlaugssonar um að rannsókn á hendur honum verði felld niður, að Baldur hefði verið staðinn að ósannindum. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag þar sem ítarlega er fjallað um málflutninginn í máli Baldurs sem fram fór fyrr í vikunni. Fram kemur að í skýrslutöku yfir Jónínu S. Lárusdóttur, ráðuneytisstjóra í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, sem Björn vitnaði til í málflutningi, sagði hún að Baldur hefði setið fund með sér ásamt bankastjórum Landsbankans, Sigurjóni Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, 13. ágúst í fyrra. Á fundinum lýstu þeir, „í algjörum trúnaði", eins og Björn komst að orði, því yfir að Landsbankinn gæti lent í vandræðum þar sem bankinn gæti ekki orðið við kröfum breska fjármálaeftirlitsins um færslu á Icesave-reikningum Landsbankans yfir í breskt dótturfélag. Björn sagði síðan: „Þetta sýnir að Baldur sagði ósatt um að hann hefði aldrei átt samskipti við stjórnendur Landsbankans, og þá sýnir þetta einnig að hann bjó yfir upplýsingum um stöðu Landsbankans sem sýndi alvarlega stöðu hans á þessum tíma." Í Viðskiptablaðinu segir: „Þá vitnaði Björn einnig til þess að Baldur hefði setið fund í Seðlabankanum 31. júlí, þar sem staða íslensku bankanna var til umræðu. Björn vitnaði sérstaklega til þess að Jónas Fr. Jónsson, þáverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), hefði látið bóka að Landsbankinn hefði þrjá mánuði til þess að uppfylla skilyrði breska fjármálaeftirlitsins vegna Icesave. Þá hefði Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans, látið bóka að breska fjármálaeftirlitið væri að vinna góða vinnu við að lágmarka tjón tryggingasjóðsins íslenska. Baldur sjálfur lét síðan bóka sérstaklega, að það gæti orðið „banabiti bankanna" ef upplýsingar um stöðu þeirra, sem var til umfjöllunar á fundinum, yrðu á allra vitorði. „Banabiti," ítrekaði Björn. Bolli Þór Bollason, sem var ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyti Geirs H. Haarde, var formaður fyrrnefnds samráðshóps. Hann hefur verið yfirheyrður af sérstökum saksóknara vegna málsins og vitnaði Björn til skýrslu sem hann gaf í málflutningi sínum. Baldur hafði í bréfi til FME nefnt að hann hefði hringt í Bolla Þór degi áður en hann seldi hlutabréfin og tilkynnt honum um að hann ætlaði að selja bréf sín. Þetta hefði hann gert þar sem Bolli Þór var formaður hópsins. Björn sagði Bolla Þór hafa neitað þessu við skýrslutöku og sagt Baldur hafa hringt í sig eftir að hann seldi bréfin. „Bolli Þór svaraði því til að þetta hefði verið óheppilegt, hann hefði viljað fá upplýsingar um þetta áður en viðskiptin áttu sér stað," sagði Björn."
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira