Rekstur Mosfellsbæjar í jafnvægi á næsta ári 17. desember 2009 08:09
Heildartekjur A og B hluta bæjarsjóðs Mosfellsbæjar á árinu 2010 eru áætlaðar 4.612 milljónir kr. en gjöld án fjármagnsliða áætluð 4.190 milljónir kr. Rekstrarafgangur án fjármagnliða er áætlaður 423 milljónir kr., fjármagnsliðir er 425 milljónir kr. og því rekstrarniðurstaða samstæðunnar neikvæð um 2 milljónir kr.Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti samhljóða í gærkvöldi fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Áætlun var unnin sameiginlega af öllum flokkum í bæjarstjórn líkt og gert var fyrir árið 2009. Megináherslur í fjárhagsáætluninni eru að standa vörð um fjölskyldur og velferð, en tryggja um leið að bæjarfélagið veiti áfram góða öfluga þjónusta. Yfirskrift fjárhagsáætlunarinnar er: Hagræðing - uppbygging - velferð.Í tilkynningu segir að hagrætt verður í rekstri bæjarins til að mæta lægri tekjum sem og hækkun kostnaðar og launa svo komast megi hjá því að hækka gjaldskrár vegna þjónustu í grunn- og leikskólum og skerða styrki og heimgreiðslur. Frekari hagræðingarkrafa hefur verið gerð á yfirstjórn sveitarfélagsins, sem og stjórnunardeildir stofnana.Gert er ráð fyrir að skatttekjur lækki að raungildi milli ára. Þrátt fyrir það verði veltufé frá rekstri jákvætt um 86 milljónir kr. og áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 3,5 milljónir kr.Útsvarsprósenta verður 13,19% og er enn 9 punktum undir leyfilegu hámarksútsvari. Útsvarstekjur eru áætlaðar 2.682 milljónir kr. sem er hækkun um 2,7% milli ára. Tekjur af fasteignasköttum eru áætlaðar 460 milljónir kr. aukning um tæpar 2 milljónir kr. frá fyrra ári vegna fjölgunar íbúða. Álagningahlutfall fasteignaskatts íbúðarhúsnæðis er óbreytt en fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði verður leiðréttur sem nemur lækkun fasteignamats."Fjárhagur Mosfellsbæjar er traustur og hafa skuldir á undanförnum árum lækkað að raungildi samfara hækkun á eiginfjárhlutfalli, þrátt fyrir lántökur ársins 2009. Það gerir bæjarsjóði kleift að takast á við það krefjandi umhverfi sem nú blasir við. Mikil og ötul vinna hefur verið lögð í að koma þessari áætlun saman og hefur það verið meira krefjandi en nokkru sinni fyrr en niðurstaðan er vel ásættanleg miðað við aðstæður. Það er okkur mikilvægt að auka ekki byrðar á barnafjölskyldur og þá sem þurfa á félagslegri þjónustu að halda, " segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í tilkynningunni.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira