Kaupmáttur launa ekki lægri síðan árið 2002 23. september 2009 13:40
Á sama tíma og launahækkanir hafa verið litlar hefur verðbólgan geisað, sem gerir það að verkum að kaupmáttur launa hefur minnkað hratt. Hann hefur ekki verið lægri hér á landi síðan í árslok 2002. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að kaupmáttur launa minnkaði um 0,5% á milli júlí og ágúst og frá því að kaupmáttur launa náði hámarki í byrjun síðasta árs hefur hann minnkað um 11,9%. Má reikna má með að kaupmáttur haldi áfram að rýrna á næstu mánuðum. Laun hækkuðu einungis um 0,03% í ágúst frá fyrri mánuði. Þetta er mun minni hækkun en á sama tíma fyrir ári þegar laun hækkuðu um 0,46% frá fyrri mánuði og er þetta til vitnis um þann slaka sem kominn er á innlendan vinnumarkað. Undanfarna 12 mánuði hafa laun hækkað um 2,2% en í ágúst árið 2008 höfðu laun hækkað um 9,1% fyrir sama tímabil skv. tölum frá Hagstofu Íslands. Launahækkanir síðustu mánaða hafa verið litlar miðað við það sem áður var þegar atvinnumarkaðurinn einkenndist af mikilli þenslu og launaskriði. Núna hefur hinsvegar syrt í álinn, en allt frá hruninu síðasta haust hefur vinnumarkaðurinn einkennst af umtalsverðu atvinnuleysi, hópuppsögnum og jafnvel beinum nafnlaunalækkunum í mörgum tilvikum. Miklar breytingar hafa orðið á vinnumarkaði á Íslandi eftir að hin alþjóðlega fjármálakreppa skall á. Þannig hefur atvinnuþátttaka og vinnutími minnkað svo og atvinnuleysi stóraukist. Nafnlaunalækkanir hafa verið í mörgum af þeim greinum sem verst hafa orðið úti í kreppunni. Jafnframt hefur hluti þeirra erlendu starfsmanna sem hingað komu á uppgangstímum flutt af landi brott, en á fyrstu sex mánuðum ársins var flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara neikvæður um 761 og er það í fyrsta skipti sem það gerist síðan 1992. Því hefur verulega reynt á sveigjanleika íslenska vinnumarkaðarins.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira