Viðskipti innlent

Sagex og Lindir hætt við Drekasvæðið

Orkustofnun barst síðla dags í gær erindi frá Sagex Petroleum, þar sem sameiginleg umsókn félagsins og Lindir Exploration um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu er dregin tilbaka.



Í frétt um málið á heimasíðu Orkuveitunnar segir að fyrr í sumar dró Aker Exploration umsókn sína til baka vegna breyttrar stefnumörkunar hjá fyrirtækinu í kjölfar samstarfs og síðar samruna við annað fyrirtæki.

 

 

Í ljósi þessa mun Orkustofnun ekki veita sérleyfi á þessu ári samkvæmt skilmálum fyrsta útboðs á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Stefna um framhaldið verður mótuð á næstunni af viðkomandi stjórnvöldum.

 

 

Í samskiptum við þau olíuleitarfyrirtæki sem sýndu útboðinu áhuga, en sóttu hins vegar ekki um sérleyfi, kom fram að helstu ástæður fyrir því að þau sátu hjá að þessu sinni voru m.a. bágt efnahagsástand á útboðstímabilinu með tilheyrandi skorti á nýju fjármagni og mikil áhætta sem fylgir því að hefja rannsóknir á nýju svæði eins og Drekasvæðið er.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×