Stjórn Kaupþings harmar lögbannsbeiðni bankastjóra 5. ágúst 2009 23:18
Stjórn Kaupþings, undir formennsku Huldu Dóru Styrmisdóttur, sendi starfsmönnum bankans tölvupóst í dag þar sem kom fram að stjórnin harmi þann skaða sem hlaust af lögbannskröfu Finns Sveinbjörnssonar, bankastjóra Kaupþings. Þá er sérstaklega tekið fram í póstinum að stjórnin hafi ekki átt þátt í ákvörðun bankastjórans og telur kröfuna ekki þjóna hagsmunum bankans. Frá þessu var skýrt á pressan.is en Vísir hefur tölvupóstinn undir höndum. Í póstinum er áréttað að varlega þurfi að fara með trúnaðargögn sem varða viðskiptavini bankans. Þá segir að stjórnin telji engu að síður nauðsynlegt að fá allt upp á borð varðandi bankahrunið. Leiða þurfi í ljós upplýsingar um orsakir og að helstu gerendur verði kallaðir til ábyrgðar samkvæmt lögum. Niðurlag póstins er harðort og er beint gegn bankastjóranum Finni. Þar segir: „Stjórn Nýja Kaupþings banka átti ekki þátt í ákvörðun bankastjóra sl. laugardag um lögbann á fréttaflutning RÚV af efni sem er öllum aðgengilegt á netinu og telur það ekki hafa þjónað hagsmunum bankans eða því yfirlýsta markmiði að standa vörð um trúnaðarupplýsingar. Stjórnin harmar þann skaða sem af málinu hefur hlotist fyrir orðspor bankans." Pósturinn í heild sinni: ,,Nýja Kaupþing varð til eftir hrun íslenska bankakerfisins þegar traust á fjármálastofnunum hafði beðið skipbrot. Stjórn hins nýja banka hefur lagt kapp á að byggja upp traust á starfsemi bankans. Ein meginstoð bankastarfsemi er að viðskiptavinir geti treyst því að upplýsingar sem þá varða séu ekki aðgengilegar óviðkomandi. Stjórn Nýja Kaupþings lýsir því þungum áhyggjum af því að upplýsingar sem varða núverandi viðskiptavini bankans og falla undir lög um bankaleynd séu öllum aðgengilegar. Jafnframt er vakin er athygli á því að trúnaðarupplýsingar sem til urðu í starfsemi gamla Kaupþings eru í vörslu ýmissa aðila og bent á mikilvægi þess að allir sem búa yfir slíkum gögnum yfirfari meðferð sína á trúnaðarupplýsingum. Rík áhersla er lögð á grandvara meðferð trúnaðarupplýsinga hjá Nýja Kaupþingi. Stjórnin telur nauðsynlegt að fá allt upp á borðið sem varðaði hrun bankakerfisins. Hún treystir því að yfirstandandi rannsóknir muni leiða í ljós upplýsingar um orsakir og að helstu gerendur verði kallaðir til ábyrgðar samkvæmt réttum lögum. Stjórn Nýja Kaupþings banka átti ekki þátt í ákvörðun bankastjóra sl. laugardag um lögbann á fréttaflutning RÚV af efni sem er öllum aðgengilegt á netinu og telur það ekki hafa þjónað hagsmunum bankans eða því yfirlýsta markmiði að standa vörð um trúnaðarupplýsingar. Stjórnin harmar þann skaða sem af málinu hefur hlotist fyrir orðspor bankans."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira