Jöklabréfastærðin komin niður í 80 milljarða 16. júní 2009 19:31
Útistandandi jöklabréf eru nú komin niður í 80 milljarða kr. Þegar mest lét námu þau um 450 milljörðum kr. árið 2007. Við bankahrunið s.l. haust voru þau komin í um 300 milljarða kr. Síðan hefur þeim verið breytt í ríkisbréf, einkum eftir tilkomu gjaldeyrishaftanna. Hagfræðideild Landsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni. Þar segir að heildarvirði útistandandi jöklabréfa hafi fallið hratt að undanförnu en frá áramótum hafa jöklabréf að nafnvirði tæplega 170 milljarða kr. fallið á gjalddaga. Þessu til viðbótar er á morgun, 17. júní, gjalddagi á 4 milljarða kr. jöklabréfi sem gefið var út af Rentenbank, sem er eins konar lánastofnun landbúnaðarins í Þýskalandi. Að þeim gjalddaga loknum eru aðeins rúmlega 80 milljarðar kr. jöklabréfa enn útistandandi, en til samanburðar voru alls útistandandi jöklabréf að andvirði yfir 450 milljarða kr. þegar mest lét haustið 2007. „Vegna takmarkana á fjármagnsflutningum er þó ljóst að stærstur hluti þeirra höfuðstólsgreiðslna sem fallið hafa til frá því í haust hefur ekki verið fluttur úr landi. Að auki hefur Seðlabankinn nýlega birt túlkun þess efnis að heldur ekki sé heimilt að skipta vaxtagreiðslum af jöklabréfum, þ.e. erlendum skuldabréfum sem gefin eru út af erlendum aðilum í krónum, yfir í erlendan gjaldeyri. Þetta fé hefur því þurft að leita í aðra innlenda ávöxtun, svo sem ríkisskuldabréf, víxla eða innlán," segir í Hagsjánni.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira