Reyndu að smygla 17.000 milljörðum til Sviss 16. júní 2009 16:12
Tveir Japanir voru nýlega gripnir á járnbrautarstöð á landamærum Ítalíu og Sviss með bandarísk ríkisskuldabréf upp á 134 milljarða dollara falin í töskum sínum. Upphæðin nemur 17.000 milljörðum kr. en mennirnir voru á leið til Sviss með töskurnar. Samkvæmt frétt á fréttastofnunni Direkt voru mennirnir gripnir í bænum Chiasso sem virðist vera uppáhaldsstaður fyrir þá sem reyna að smygla gjaldeyri og skuldabréfum yfir til Sviss. Ítölsk lögregluyfirvöld reyna nú að finna út hvort skuldabréf Japananna séu ekta og þá hvort þau séu í eigu þeirra sjálfra. Ef svo er, segir Direkt, þá eru mennirnir tveir fjórðu stærstu handhafar að bandarískum ríkisskuldabréfum í heiminum. Til samanburðar má nefna að eign breskra stjórnvalda í bandarískum ríkisskuldabréfum nemur 128 milljörðum dollara og Rússar eiga slíkt bréf upp á 138 milljarða dollara.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira